Ægir - 01.11.1918, Blaðsíða 6
162
ÆGIR
Bandamanna, þar af greiðir nefndin, með samsvarandi fresti, 70% eftir þvi sem
bankarnir hafa peningaráð til.
2. gr.
Hinn hlula fiskverðsins, eða 30°/o, geta þeir seljendur, er þess óska, fengið
jafnframt á þann hátt, að þeir geíi út víxla fyrir upphæðinni, er Útflutningsnefnd-
in samþykkir og greiðir forvexti af, en bankarnir síðan væntanlega kaupa. Verði
fiskurinn eigi seldur, eða nægilega mikið af honum, til þess að andvirðið hrökkvi
til greiðsln þessum víxlum á gjalddaga, er útgefendum þeirra skylt að gefa út fram-
lengingarvíxla eftir þörfum, með sama fyrirkomulagi og hina, enda gengur hið
fyrsta, er nefndin fær inn af andvirði fiskjarins, til lúkningar þessum hluta fisk-
verðsins.
3. gr.
Það sem nefndin þar næst fær inn fyrir fiskinn, gengur til lúkningar þeim
lánum, sem nefndin, með fulltingi landssjórnarinnar, hefir tekið samkvæmt 1. gr.
4. gr.
Seljist fiskurinn hærra verði til jafnaðar, en reikningsfært er, samk. 1. gr.,
fer um þann afgang svo sem fyrir er mælt í tilkynningu nr. 5, 11. gr. Fari svo
ólíklega, að fiskurinn nái eigi því verði til jafnaðar, fer um það eflir fyrirmælum
sömu greinar.
5. gr.
Útflutningsnefndin veitir fiskinum móttöku á þessum höfnum:
Reykjavík, Akureyri,
Hafnarfirði, Seyðisfirði,
Patreksfirðí, Norðfirði,
Bildudal, Eskifirði,
Pingeyri við Dýrafjörð, Fáskrúðsfirði,
ísafjarðarkaupstað, Vestmannaeyjum.
Eftir samkomulagi við nefndina getur komið til greina um fleiri hafnir, ef
þar er svo mikill fiskur, og aðrar kringumstæður leyfa, að nefndin geli komið til
leiðar fermingu þar heint til útlanda.
Sé þar á móti á einhverri af ofantöldum höfnum svo lítið fiskmagn, eða
aði'ar ástæður valda því að ferming þaðan til útlanda getur eigi átt sér stað, áslcil-
ur nefndin, að seljendur annist flutning á fiskinnm til annarar hafnar, er nefndin
þá til tekur.
6. gr.
Um geymslu fiskjarins og vátryggingu, um pökkun hans og flulning í skip,
svo og um opinber gjöld af fiskinum, gilda allar sömu reglur sem um fiskinn til
Bandamanna, sbr. tilkynningar nr. 1 og nr. 5.