Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1918, Blaðsíða 21

Ægir - 01.11.1918, Blaðsíða 21
ÆGIR 177 svo er sumarskeiðið, það er vaxtar og næringar skeiðið, þá er liitinn í sjónum mestur og mest gnægð af allskonar æti. Þá vex uppfæðingurinn óðfluga, svo að það má nærri sjá muninn með hverri viku1) og fullorðinn fiskur bætir lika meiru eður minna við vöxt sinn. Þetla skeið tekur nokkurn veginn yfir mánuð- ina júní—október. Loks er vetrarskeiðið. Það er kælingar og kuldatíminn; þá nær hitinn lágmarki sínu og birtan dvín og verður að myrki, jafnvel á grunni, i deshr.—janúar. Þá drégur úr öllu lífi, margar svifverur deyja, fiskarnir lifa við nauman skarnt eða svelta og horast, og hinir þroskuðu búa sig undir h^gningu. Það dregur úr öllum vexti, eða hann stansar mcð öllu, svo að margnr upp- vaxandi fiskur er nál. jafnlangur í októ- her lok og hann er í júníbyrjun, þegar næsta vaxtarskeið byrjar og ef til vill miklu þyngri. Með vorinu byrjar svo líf- ið á nýjan leik, og þannig gengur það ár eftir ár og öld eftir öld, án þess að mennirnir geti nokkuð við það ráðið; þeir verða að haga sér eftir þcssum breytingum 1 öllum sínum veiðiaðferðum; en þvi belur sem þeir þekkja samband- ið milli orsaka og afleiðinga i þessum at- riðum, þvi betur standa þeir að vígi í þvi að hagnýta sér viturlega þessi gæði náttúrunnar. Leiðrélting: í ritgerð þessari, í 10. tbl. bls. 158 stendur i 21. 1. að neðan: Norð- ur af íslandi, á að vera suður af íslandi. Fullveldinu faguað. Sunnudagurinn 1. des. var mesti blið- viðrisdagur, sem komið hefir lengi, og 1) T. d. getur þyrsklingur í Faxaflóa vaxið 20 cm. á einu sumri; það geta orðið 1—2 cm. á viku. lagði forsjónin þannig sinn skerf til þess að þessi merkilega stund gæti orðið sem hátíðlegust. KI. 11V2 lók fólk að streyma úr öllum áttum að Lækjartorgi. Mannfjöldinn safn- aðist alt í ltring um sjórnarráðsblettinn, en þeir, sem sérstakrega hafði verið boð- ið að vera við athöfnina, embættismenn, ritstjórar, ræðismenn erlendra rikja o. s. frv. söfnuðust við dyr stjórnarráðsins. Liðsmenn af varðsldpinu mynduðu heið- ursfylkingu á stjórnarráðsblettinum og lúðraflokkur, undir stjórn Reynis Gísla- sonar, var hjá stjórnarráðshúsinu. KI. H^/4 hófst athöfnin með því að lúðraflokkurinn lék aEldgamla ísafo!d«. Þá hélt ráðherra Sigurður Eggerz, ræðu þá er hér fer á eftir: íslendingar! Flans hátign konungurinn hefir stað- fest sambandslögin í gær og í dag ganga þau í gildi. ísland er orðið viðurkent fullvalda rilci. Þessi dagur er mikill dag- ur í sögu þjóðar vorrar. Þessi dagur er runninn af þeirri baráttu, sem háð hefir verið í þessu landi alt að því í heila öld. Hún hefir þroskað oss, baráttan, um leið og hún hefir fært oss að markinu. Saga hennar verður ekki sögð í dag. Hún lif- ir í hjörtum þjóðarinnar. Þar lifir einn- ig minning þeirra, sem með mestri trú- mensku liafa vakað yfir málum vorum. Hér engin nöfn. Þó að eins eitt, sem sagan hefir lyft hátt yfir öll önnur á sín- um breiðu vængjum. Nafn Jóns Sigurðs- sonar. Hann var foringinn meðan hann litði. Og minning hans heíir síðan hann dó verið leiðarstjarna þessarar þjóðar. í dag eru tímamót. I dag byrjar ný saga, saga liins viðurkenda islenzka ríkis. Fyrstu drættina í þeirri sögu skapar sú kynslóð, sem nú lifir, frá þeim æðsta, konunginum, til þess sem minstan á

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.