Ægir - 01.11.1918, Blaðsíða 8
164
ÆGIR
útvega kaupendur að, þá hefir Útflutningsnefndin ákveðið að gefa sem flestum
tækifæri til að geta komið lil greina við kaup á fiskinum, eítir því sem um
getur samist.
Eftir þvíj sem næst verður komíst um fiskmagnið, hyggur nefndin að til
muni vera óselt:
a. Fullverkaður fiskur: Um 2500 smál. af stórfiski.
— 60 — - smáfiski,
— 200 — - löngu,
— 160 — - ýsu.
— 30 — keilu,
— 60 — - ufsa,
— 800 — - Labradorfiski,
og þar af lítið eitt af Labradorýsu.
b. óverkaður fisltur: Um 300 smál. af stórfisld,
— 250 — - smáfisld,
— 30 — - löngu,
— 100 — - ýsu.
Þessar tölur eru eigi fyllilega nákvæmar, en væntanlega verður fullverkaður
fiskur eitthvað meiri, og' óverkaður fiskur miklu meiri, með því líka að við bætist
það sem hér eftir veiðist til ársloka.
Hér með tilkynnist þvi, að fram til 15. desember næstkomandi tekur Út-
llutningsnefndin á móti tilboðum i fiskinn frá ábyggilegum kaupendum. og séu
tilboðin miðuð við sölu eftir vigtar- og matsvottorðum, sem nefndin hefir tekið
gild. Tilboðin má gera hvort heldur vill í meiri eða minni hluta fiskjarins. Tekið
skal fram, að kaupandi greiði útflutningsgjald og stimpilgjald af fiskinum. Enn
fremur sé tilboðin miðuð við að fiskurinn sé afhentur kaupanda um borð, stakkað
i skipslest kaupanda á höfnum, sem nefndin hefir samþykt sem útflutningshafnir,
sbr. tilkynningu Útflutningsnefndar, nr. 10.
Aðallega liggur fiskurinn í Reykjavik, Vestmannaeyjum, á Austfjörðum og
iitill hluti á Vestfjörðum.
Öll titboð afhendist nefndinni i lokuðum umslögum, sem verða opnuð 15.
desember, og ákveður nefndin eftir þann tíma, hvort taka skuli tilboðunum eða
ekki, alt eftir því livaða skilyrði fyrir sölu þá eru fyrir hendi.
Nánari upplýsingar um þetta og önnur atriði, fást á skrifstofu Úttlutnings-
nefndarinnar, sími 751.
Reykjavik, 20. nóvember 1918.
Thor Jensen. Pétur Jónsson. Ó. Benjaminsson.