Ægir - 01.11.1918, Side 16
172
ÆGIR
sýslu fór þá þess á leit við mig, að eg
kæmi á fund bjargráðanefndar sýslunn-
ar og Akureyrarkaupstaðar, og hefði þar
atkvæði um hvernig úthluta skyldi 360
fötum af steinoliu til vélabáta og véla-
skipa i Akureyrarkaupstað og Eyjafjarði
arsýslu. Þótt mér væri það þegar Ijóst,
að það var eigi bein skylde mín sem
erindreka, að hafa afskifti af þessari
olíuskiftingu, vildi eg þó eigi skorast und-
an að Ieggja minn skerf til að vinna að
því að reyna að skíflingin yrði sem rétt-
látust. Á fundinum var svo sýslumanni
og mér falið að ráða skiftingunni milli
hreppanna. Eg útvegaði þegar að nokkru
leyti símleiðis, hve margir vélabátar væru
i hverjum hrepp og live marga hest-
krafta vélarnar hefðu. Þegar eg hafði
fengið þetta, samdi eg tillögur um skift-
ing á olíunni og sendi sýslumanni. Með-
al annars tók eg tillit til hve langsótt
var á mið úr hinum ýmsu veiðistöðum.
Sýslumaður félst á tillögur minar og fór
að mestu eftir þeim. Þegar þessi skifting
hafði farið fram voru þó margir véla-
bátar, sem eigi höfðu meiri olíu en sem
svaraði */4 af því, sem þeir bjuggust við
að þurfa í meðal aílasumri.
Kvíðinn fyrir oliuskortinum var þvi
enganvegin horfinn og sumir sem áttu
fleiri en einn vélabát liöfðu á orði, að
ráða eigi menn neina á suma þeirra. I
því vandræðaútlili, sem þá var, varð það
að samkomulagi milli mín og nokkurra
útgerðarmanna, að eg færi til Reykjavík-
ur í apríl, og sæi til hvort þar yrðu
nokkru umþokað í olíumálinu, og' eink-
um til að ganga ríkt eftir, að Norður-
land fengi tiltölulegan hluta afþeirri oliu
er til landsins kæmi, miðað við vélabáta
og skipa-fjölda þeirra og stærð vélanna.
Var ætlast til að útvegsmenn greiddu
mér */u ferðakostnað eða um 100 kr. Eg
fór með »Sterling« til R.víkur. Gaf lands-
verzluninni greinilegar skýrslu um á-
standið fyrir norðan, og talaði við stjórn-
arráðið. Eg skal ekkert um það dæma,
hvern árangur þessi ferð nn’n hafði við-
vikjandi oliusendingu til Norðurlandsins
síðar á n. 1. sumri, en eg gat eigi er eg
kom heim bent á nokkurn verulegan
árangur af ferð minni, gekk eg því eigi
eftir umtöluðum ferðakostnaði og
ætla mér eigi að gera, enda ekki boðið,
enda engir samningar um hann nema
laust umtal. Úr olíuskortinum rættist svo
er fram á sumarið kom/ að veiði var
slunduð með fullum áhuga þess vegna,
og var það gleðilegt fyrir útveginn hér.
16, júlimánaðar lagði eg af stað á
hesti í ferð til Skagafjarðar- og Húna-
vatnssýslu, til að kynnast þar sjósókn
og stofna Fiskifélagsdeildir. Fór eg fyrsl
til Dalvíkur, þá til ólafsíjarðar. Hafði eg
áður komið í Ólafsfjörð og Sigluí'jörð og
llutt fyrirlestur i Siglufjarðar Fiskifélags-
deild og haft umræðufund. Úr Ólafsfirði
fór eg yfir »Fljót«, og fyrir norðan heið-
ar með sjó til Skagafjarðar. 1 Fljótum
eru ijögur vötn og silungsveiði í öllum.
Hafa þau vötn, ólafsfjarðarvatn og Vötn-
in i Húnavatnssýslu og Skagafirði vakið
hjá mér hugsun um, að með silungs-
klaki og jafnvel fiskiklaki i sumum þeirra,
mundi mikið mega auka veiði i þeim
vötnum og ala þar upp fisk og silung.
Mun eg ef til vill ræða það mál sérslak-
lega siðar við Fiskifélagsstjórnina í sam-
bandi við vatnaveiði og veiði i ám á
Norðurlandi, sem eg er nú að safna
skýrslum um, sleppi því að ræða um
það mál frekar hér.
20. júlí var eg staddur i Hofsós á vest-
urleið, er þar helzta útræði austan Skaga-
fjarðar og áttu þar heima 5 vélabátar.
í5ann dag stofnaði eg þar Fiskifélags-
deild. Voru lög samþyk, 14 menn gengu
í deildina, Stjórn kosinn: Jón Konráðs-