Ægir

Volume

Ægir - 01.03.1923, Page 8

Ægir - 01.03.1923, Page 8
30 ÆGIR til 195 kr. skpd., eins og borgað mun hafa verið fyrir fisk alment á þeim tíma og, að þessi fiskur sje óseldur ennþá og að nú sje ekki hægt að selja hann fyrir meira en 150—160 krónur skippundið, þá er mismunurinn 280 — 360 þús. krónur. það væri auðvelt að telja ýms dæmi, sem benda til þess, að aflaskýrsluólagið hafi gert að verkum, að verð á íslensku fiski- framleiðsluvörunum hafi orðið að mun lægra en búast hefði mátt við, ef áreiðan- legri aflaskýrslur hefðu verið til og að- gengilegar fyrir þá, sem með fiskverslun hafa farið. Hvað miklu sú upphæð nemur er vitanlega ómöglegt að segja um með neinni vissu, en vel gæti jeg búist við að það hafi skaðað landið um hálfa mill. kr. hvort árið 1921 og 1922. Einnig er hugsanlegt, að þegar sendi- menn íslands, áttu að semja við bresku stjórnina um sölu afurðanna 1917 mundu samningar hafa gengið greiðar og ef til vill hægt að komast að betri skilmálum ef íslensku fulltrúarnir hefðu haft nákvæma »Statistik« yfir framleiðslu landsins og verslun þess við önnur lönd, á undan- förnum 10—20 árum. En það hefir líka önnur áhrif og þau máski öllu hættulegri, sem sje þau að þar sem skýrslurnar eru til, og í flestum tilfellum ekki hægt að sanna að þær sjeu rangar, þá má nota þær mönnum til skaða og spursmál um nema það hafi verið gert, en það kalla jeg, ef menn fara að byggja á þeim ýmiskonar útreikninga og sam- kvæmt þeim mynda sjer skoðanir eða álykt- anir, sem eru villandi fyrir almenning eða jafnvel rangar. Eins og mönnum er ef til vill kunnugt, gerði Fiskifjelag íslands tilraun, með að fá menn í helstu veiðistöðvum landsins til þess að safna skýrslum, um afla á árinu 1922, og skyldi sendast íjelagsstjóra á hálfsmánaðarfresti. En þessi tilraun mistókst algerlega, því miður. En jeg verð að segja það, að við öðru var varla að búast, þar sem Fiski- fjelagið hafði enga lagaaðstoð i þessu efni, og menn yfirleitt skilningsdaufir fyrir þessu máli, sem meðal annars stafar af þeim orsökum, að hve slælega aflaskýrslusöfn- unin hefir verið framkvæmd af þeim er laganna hafa átt að gæta, hreppstjórum, sýslumönnum og bæjarfógetum, og fyrir þá sök, sú hugsun komist inn hjá fjöidanum, að þetta væri einber skriífinsku politík, sem sjálfir lagaverðirnir ljetu sjer i Ijeltu rúmi liggja um hvort framkvæmd væri eða ekki. (Úr ræöu, er forseti Fiskifjelagsins hjelt á aöalfundi pess, 17. febrúar 1923). Skýrsla erindreka Austfirðingafjórðungs frá Vio—81/i2 1922. Aflabrögð misheppnuðust þetta haust hér eystra, eins og nolckur undanfarin haust. Ég reyndi hvað ég gat að ná afla- skýrslum frá sept. til des. en varð árang- urslaust þrátt fyrir simtöl og símskeyti og persónulegt viðtal mitt við menn þá á sumum verstöðum, er eg hafði beðið að safna þeim. Pað hrafl sem ég náði gat ég ekki sent, vegna þess að það var svo ó- fullkomið. Eftir því sem ég kemst næst munu hafa komið á land frá 1. sept. til í desember að siðustu bátar á Fáskrúðsfirði hættu að róa, um 3000 skpd. svo samtals afli á Austurlandi mun þá hafa orðið á þessu ári alls um 20106 skpd. fyrir utan þann fisk er var aðkeyplur, sem var um 7500 skpd. Yfirleitt var afli á Austurlandi vænn á þessu ári, þ. e. óvanalega mikið þorskur, og fiskifengur yfirleitt i góðu meðallagi.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.