Ægir - 01.03.1931, Blaðsíða 3
ÆGIR.
MÁN AÐARRIT FISKIFÉLAGS ISLANDS.
24. árg.
Reykjavík. — Marz 1931.
Nr. 3.
Ólafur Guömundsson
skipstjóri.
Faeddur 22. sept. 1884, drukknar 21. jan. 1931.
Hinn 6. jan. s. 1. kvaddi ólafur Guð-
Wundsson konu sína og börn, eins og
svo ótal mörgum sinnum
áður, er hann lagði afstað
í sjóferðr. Þótti litil hætta
virtist vera á ferðum hér,
þar sem ólafur fór far-
þegi á ríkisskipinu »Súð-
ln<f, ætlaði með henni til
Akureyrar og átti þar að
mæta og fara áleiðis til
Reykjavíkur með stóru,
vel reiddu gufuskipi, að
^afni »Ulv«, taka móti
fiski fyrir »Kveldúlfsfélag-
á nokkrum höfnum
vestra, og að þrem vik-
bjóst hann við að sjá
sina aftur, en það átti
ekki að verða, því um
kveldið 21. jan. mun »Ulv«
fiafa farist í hrið og norðanveðri, á svo-
nefndum þaralátursskerjum fram af
Hornströndum. Hefur ýmislegt rekið úr
skipinu á þessu svæði, sem bendir á
staðinn þar sem það fórst með öllu og
öllum
Ólafur heit. Guðmundsson varð rúmra
ö ára að aldri. Snemma tók hann að
stunda sjó og tók stýrimannapróf hið
tninna við Stýrimannaskólann þá korn-
Áður hafði
Ólafur Guðmundsson
ungur, en er íslenzkum milliferðaskipum
fjölgaði, beindist hugur hans til þeirra,
og til þess að öðlast full réttindi gekk
hann á Stýrimannaskólann veturinn 1918
og tók farmannapróf eða »meira prófið«
vorið 1919.
hann verið skipstjóri á
mótorskipi »Svan« frá
Stykkishólmi; varþaðvet-
urinn og vorið 1917 og
síðar á ms. »Högna«, í
farþega og vöruflutningum
hér við land. Eftir að hann
lauk prófi vorið 1919,gerð-
ist hann stýrimaður á
seglskipinu »Huginn«,eign
Iíveldúlfsfélagsins og var
á því í millilandasigling-
um í 2 ár, en í ágúst 1921,
réðist hann skipstjóri á
mótorskipið »Svölu« eign
S. í. S. o. fl., fór með
skipið 2 ferðir til Spánar
og eina ferð til Belgíu.Að
þeim ferðum loknum var
skipinu lagt á Rauðarárvík
í vetrarlegu, en í norðan stórviðri slitn-
uðu festar þess og rak það á land hjá
Rauðará við Reykjavík 24. marz 1922,
og brotnaði svo, að eigi varð við það
gert. Eftir það var hann að mestu stýri-
maður og háseti á togurum. Frá 1926,
vann ólafur heitinn mest á landi, eink-
um hjá Kveldúlfsfélaginu, og var þar
físktökumaður síðustu árin.
Hann var prýðilega að sér, ritaði á-