Ægir - 01.03.1931, Blaðsíða 4
50
ÆGIft
gæta hönd, talaði ágætlega ansku og
dönsku. Auk þess var hann hagur vel á
tré og smíðaði margt, bæði við hús það
sem hann reisti á Framnesvegi 30 og
svo ýmsa muni innanstokks. Hann var
bókavinur mikill og átti margar bækur.
Hinn 15. júni 1912, gekk ólafur að eiga
Guðrúnu Friðfinnsdóttur frá Hálsi í Kjós,
dóttur Guðfinnu Gísladóttur, síðari konu
Fórðar bónda á Hálsi og skipstjóra Frið-
finns Friðfinnssonar á óttarstöðum í
Hraunum, fyrra manns hennar, mesta
merkismanns. Varð þeim Guðrúnu og
Ólafi þriggja barna auðið, sem öll eru
á lífi hjá móður sinni, einn piltur, ný-
lega fermdur og tvær dætur ófermdar,
sem öll eru mestu myndarbörn.
Allir vinir og vandamenn ólafs heitins
sakna hans. Hann var ágætur heimilis-
faðir og tryggur vinur vina sinna.
Sv. E.
Fundargerð.
Árið 1931, föstudaginn 9. janúar, var
settur og haldinn fundur i húsi Verzl-
unarmannafélagsins á Akureyri, með full-
trúum frá Fiskifélagsdeildum Norður-
lands.
Var til fundarins boðað samkvæmt
samþykkt fjórðungsþings Fiskifélags-
deilda Norðurlands, sem haldið var á
Akureyri þann 12. og 13. desbr. 1930.
Fundinn setti erindreki Fiskifélagsins,
Páll Halldórsson, og lýsti með itarlegri
ræðu tilgangi fundarins og tók það fram,
að fund þennan bæri ekki að skoða sem
deildafund, heldur væri hannsameiginleg-
ur fundur útgerðarmanna og sjómanna
Norðurlands. Að ræðunni lokinni nefndi
hann til fundarstjóra forseta hiskifélags-
deilda Norðurlands, Guðmund Péturs-
son, en varafundarstjóri var kosinn Jón
Sigurðsson í Hrisey og fundarskrifarar
Gunnar Þórðarson og Jón Benediktsson.
Á fundinum voru mættir auk forset-
ans, eftirtaldir fulltrúar:
Fyrir Hríseyjardeild: Jón Sigurðsson
og Theodór Oddsson.
Fyrir ólafsfjarðardeild: Þorvaldur Frið-
finnsson, Magnús Guðmundsson, Jónas
Jónsson.
Fyrir Dalvíkurdeild: Sigfús Þorleifsson,
Pétur Baldvinsson.
Fyrir Grenivíkurdeild: Helgi Stefáns-
son, Sigurður Ringsteð, Vilhjálmur Gríms-
son, Þorsteinn Stefánsson.
Fyrir Árskógsstrandardeild: Sigurvin
Edilonsson, Jóhann Sigurðsson, Svan-
laugur Þorsteinsson.
Fyrir Akureyrardeild : Ingvar Guðjóns-
sson, Steindór Hjaltalín.
Fyrir Flateyjardeild: Gísli Sigurgeirs-
son, Þorsteinn Jónsson.
Fyrir Hjalteyrardeild: Sig. Sigurðsson.
Fyrir Raufarhaínardeild: Hólmgeír
Helgason.
Á fundinum var tekið fyrir:
1. Kosin dagskrárnefnd: Þorv. Frið-
finnsson, Helgi Stefánsson, Jón Sigurðs-
son, Sigurður Ringsteð, Sigurvin Edi-
lonsson.
Nefnd þessi lagði siðar fram eftirfar-
andi dagskrá fyrir fundinn:
1. Sildareinkasalan.
2. Landhelgismál.
3. Erfiðleikar og framtiðarhorfur þorsk-
veiðanna.
4. Lánsstofnun fyrir bátaútveg og smáiðju.
5. Fiskisölusamlag.
6. Beitumálefni Norðlendinga.
7. Fiskimat.
8. Önnur mál.
2. Sildareinkasalan. Lesnar tillögur síð-
asta Fjórðungsþings, viðvíkjandi Síldar-
einkasölunni og starfsemi hennar.