Ægir - 01.03.1931, Side 6
52
ÆGIR
um Norðlendingafjórðungs að koma í
stað kaupráðningar þeirrar, sem enn á
sér víða stað«.
Eftir miklar umræður var tillagan sam-
þykkt með öllum greiddum atkvæðum.
t*á var kosin nefnd til að gera tillög-
ur um hlutaráðninguna og hlutu kosn-
ingu : Jón Sigurðsson, Magnús Guðmunds-
son, Sigfús Þorleifsson, Helgi Stefánsson,
Sigurvin Edilonsson, Gísli Sigurgeirsson,
Helgi Pálsson, Málmquist Einarsson og
Guðmundur Pétursson.
Að vel athuguðu máli, lagði nefndin
siðan fram svo hljóðandi:
Tillögur um kaupgreiðslu við línu-
báta útgerð.
»1. Á bátum 4 til 6 tonn, verði þrett-
ándi partur, miðað við 6 menn við bát og
öll linuvinna tekin af óskiftu og sé fisk-
urinn saltaður, skal salt, plássleiga og
allur aukakostnaður við það einnig tek-
inn af óskiftu.
II Á bátum 6 til 10 tonn verði tólfti
partur eða helmingaskifti, miðað við 6
menn við bát og auk þess, sem talið er
til frádráttar af óskiftu i lið I., skulu
oliur og beita ennfremur greiðast af ó-
skiftu.
III. Á bátum 10 til 18 tonn, verði fjórt-
ándi partur eða helmingaskifti, miðað
við 7 menn við bát og sami frádráttur
af óskiftu og getið er um í I. og II. lið.
Verði um stærri vélbáta að ræða, en
hér hafa verið tilgreindir, sem stunda
þorskveiðar úr landi, verði helminga-
skifti með sama frádrætti.
í öllum þessum tilfellum kostar út-
gerðarmaður reikningshald útgerðarinnar.
Skyldir skulu sjómenn að vinna útgerð-
inni allt það gagn, sem þeir geta, þar
með talin uppstokkun, beiting o. s. frv.
Kjör formanns, skulu vera H/s hlutur
og að öðru leyti hlutfallslega hin sömu
og háseta.
Kjör vélamanns, skulu vera l1/* hlut-
ur og að öðru leyti hlutfallslega eins og
háseta.
Kjör línustúlkna, fullkominna, skulu
vera 100 kr. á mánuði og frítt fæði og
húsnæði.
Gjald fyrir að stokka línu, skal vera
25 aurar fyrir hvern stokk.
Gjald fyrir að beita skal vera 20 aur-
ar fyrir hvern stokk.
Við reknetaveiðar beri bátverjum 33V»
°/o af brúttóveiði bátsins, er skiptist í
jafnmarga staði og menn eru við bátinn.
Par sem um kaup er að ræða, skal
hámarkskaup vera 150 krónur á mánuði
og 75 aura premia af skpd. fiskjar, mið-
að við 250 kg. fullsaltaðs fiskjar, frítt fæði
og húsnæði, en ekkí þjónusta, (í stað
premíu, má koma 60 öngla spotti)«.
Tillögur þessar voru samþykktar með
öllum greiddum atkvæðum, en þess var
getið af fulltrúum ólafsfjarðardeildar og
Dalvíkurdeildar, að þeir gætu ekki að
öllu leyti fylgt þessu i ár, vegna þegar
gerðra samninga.
5. Lánsstofnun fyrir bátaútveg og smá-
iðju. Útgerðarmaður Helgi Stefánsson,
reifaði málið með stuttri ræðu. Eftir
miklar umræður var kosin nefndtilþess
að gera tillögur í málinu. Kosningu hlutu:
Jón Sigurðsson, Steindór Hjaltalin, og
Páll Halldórsson.
Málinu síðan frestað til næsta dags.
Pá var kosin nefnd til að undirbúa
umræður nm fisksölusamlags-málið, og
gera tillögur í því, deildunum til athug-
unar. Kosningu hlutu :
Ingvar Guðjónsson, Þorvaldur Frið-
finnsson og Helgi Pálsson.
6. Beitumálefni Norðlendinga. Erind-
reki Pail Haildórsson hóf umræður um
málið, með ítarlegri ræðu, en þar sem
dagur var að kveldi kominn, var uffl'
ræðum frestað til næsta dags.