Ægir - 01.03.1931, Qupperneq 7
ÆGIR 53
Sunnudaginn 11. jan. kl. 10 árdegis,
var fundurinn enn settur og umræðum
haldið áfram um »Beitumálefni Norð-
lendinga«. 1 málinu bar erindreki Páll
Halldórsson, fram svo hljóðandi tillögu:
sÞar sem nú eru mjög víða í fjórð-
ungnum komin upp vönduð frystihús
og útlit er fyrir, að þau komi á nálæg-
um timum, þar sem þau eru enn ekki
byggð, lítur fundurinn svo á, að brýna
nauðsyn beri til, að gera eitthvað veru-
legt, til þess að tryggja framtíð þessara
dýru fyrirtækja og telur þá heppilegustu
leiðina að lögvernda frystihúsin með
banni á notkun nýrrar beitu á vorín
fram að þeim tima er hafsíld fer venju-
lega að aflast, en það má gera með al-
niennri héraðssamþykkt, staðfestri af
stjórnarráðinu. Þó gerir fundurinn ekki
ráð fyrir að slík héraðs- eða fjórðungs-
samþykkt geti komið til framkvæmda
fyr en öll beituþörf Norðlendingafjórð-
ungs, er tryggð með aðgengilegum frysti-
húsum. Telur fundurinn þvi rétt, að full-
trúar á þessum fundi flylji þetta mál, á
slmennum fundum útgerðarmanna, hver
í sinni veiðistöð, og afgreiðir því málið
a þeim grundvelli«.
Öm málið urðu miklar umræður og
voru menn sammála um það, að útgerð-
^rmönnum beri að tryggja atvinnuveg
sinn með því að eiga jafnan aðgang að
frosinni beitu, ef ný beita brygðist.
Tillaga Páls var síðan borin upp og
samþykkt með 9 atkv. gegn 4, en tillaga
frá Guðmundi Péturssyni, sem hér fer á
ehir, samþykkt með öllum greiddum at-
kvæðuna:
»Pundurinn er sammála um það, að
oauðsynlegt sé fyrir allar veiðistöðvar
að tryggja sér frosna síld til beitu, allt
tunnur á bát, og telur mjög nauð-
aynlegt, að upp komi frysti- eða kæli-
hús, þar sem þau ekki eru til«.
t málinu var enn borin upp svo hljóð-
andi tillaga, frá Sigfúsi Þorleifssyni:
»Fundurinn lítur svo á, að beitusild
hafi verið of dýr undanfarandi ár, og er
sammála um það, að reyna beri að ná
samningum um það, að verð á beitusíld
frá Akureyri verði ekki hærra en 20 kr.
tunnan og síld, veidd í veiðistöðvunum
verði ekki hærri en 15 kr. tunnan eða
5 aura stykkið«.
Tillaga þessi var samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum.
7. Lánsstojnun fyrir bátaútveg og smá-
iðju. Nefnd sú, sem kosin hafði verið í
malinu, bar fram svo hljóðandi tillögu:
»Fjölmennur, sameiginlegur fundur út-
gerðarmanna og sjómanna í Norðlend-
ingafjórðungi, haldinn á Akureyri, dag-
ana 9. til 11. jan. 1931, ályktar í einu
hljóði að senda rikisstjórn íslands eftir-
farandi áskorun:
1. Þar sem að jafnvel opinber blöð,
hafa flutt þá frétt, að i ráði væri að
leggja Útbú Útvegsbanka Islands hér
á Akureyri niður, þá mótmælir fund-
urinn harðlega þeirri ákvörðun, ef
sönn skyldi vera, og væntir þess
virðingarfyllst, að hið háa Stjórnar-
ráð, og aðrir sem hlut eiga að máli,
gangi ekki fram hjá þessari áskorun
vorri.
2. Fundurinn skorar á Alþingi og rík-
isstjórn, að sjá fyrir því, að smáskipa-
útgerð íslendinga fái.'nú þegar á þessu
ári, aðgang að sæmilega ódýrum
rekstrarlánum, sem, þótt að eins væru
miðuð við skamman tima í hvert
skifti, myndu koma smærri útgerð-
inni að stórmiklum notum, á hverj-
um tíma, og nú sérstaklega, verja
hana fyrir stórhnignun eða jafnvel
hruni.
Fundurinn leyfir sér að senda hinu
háa stjórnarráði rökstudda greinar-