Ægir - 01.03.1931, Page 9
Ægir
Ó5
FjórÖungsþing
fiskideildanna í Austfirðinga-
fjórðungi.
Ár 1930, mánudaginn 15. desember,
var fjórðungsþing fiskideilda Austfirðinga-
fjórðungs sett á Eskifirði kl. 9 e. b. —
Forseti Friðrik Steinsson setti þingið.
Þessir kosnir fulltrúar voru mættir:
Hermann Þorsteinsson og Sveinn Árna-
son fyrir Seyðisfjarðardeild.
Vilhjálmur Árnason fyrir fiskideildina
»Ægir« á Þórarinsstaðaeyrum.
Níels lngvarsson og Gísli Kristjánsson
fyrir fiskideildina »Neptunus« á Norðfirði.
Friðrik Steinsson og Eiríkur Bjarnason
fyrir fiskideild Eskifjarðar.
Hallgr. Bóasson fyrir fiskideildin á
Reyðarfirði.
Marteinn Þorsteinsson og Jón Oddsson
fyrir fiskideild Fáskrúðsfjarðar.
Markús Jensen á Eskifirði fyrir Vopna-
fjarðardeíld.
Kosin fjárhagsnefnd: Marteinn Þor-
steinsson, Markús Jensen og Níels Ing-
varsson.
Samþykkt að skipta fulltrúunum í 3
nefndir, þannig:
1- nefnd: Friðrik Steinsson, Níels
Ingvarsson, Jón Oddsson.
2. n e f n d: Marteinn Þorsteinssou, Gísli
Kristjánsson, Vilhjálmur Árnason.
3. n e f n d: Herm. Þorsteinsson, Markús
hensen, Hallgr. Bóasson, Sveinn Árnason,
Eirikur Bjarnason.
Til 1. nefndar var vísað: Frv. til laga
um breytingu á lögum Fiskiíélagslslands.
Samgöngumál.
Til 2. nefndar: Frystihúsbygging á Aust-
Uflandi. Útflutningur á kældum fiski.
Til 3. nefndar: Síldareinkasalan. Sam-
vÍQnumál. Síldarbræðsla.
Forseti las upp bréffrá Fiskifél. íslands
dags. 23. sept. sl., þar sem forseta fjórð-
ungsþings Austfirðingafjórðungs er falið
að kalla saman fjórðungsþing á þessu
hausti til þess meðal annars að velja 2
fulltrúa til Fiskiþings, til 3ja ára, og til
að semja fjárhagsáætlun fyrir fjórðungs-
þingið fyrir næsta ár. Um bréf stjórnar-
innar urðu nokkrar umræður, sérstakl.
um ónýtingu kjörbréfa fulltrúa utan af
landi, sem kosnir voru á Fiskiþing af
sl. fjórðungsþingi. Tillaga svoblj. frá Niels
Ingvarssyni og Friðrik Steinssyni, samþ.
með 8 atkv. gegn 1 :
»Fjórðungsþingið lýsir yfir því, að það
telur að Fiskiþingið 1930 hafi misbeitt
valdi sínu með þvl, að ógilda kosningu
fulltrúa frá fjórðungsþingi Austfirðinga-
fjórðungs 1929. Ennfremur væntirþingið
þess, að framvegis verði fjórðungsþingin
ein látin meta hvort fulltrúar frá deildum
séu löglega kosnir«.
Síðan voru eftirfarandi tillögur samþ.:
1. Síldarbrœðslustöð á Austurlandi.
»Fjórðungsþing fiskifélagsdeilda Austflrð-
ingafjórðungs skorar á Fiskiþingið og
stjórn Fiskifélagsins, að beita sér fyrir
því við Alþingi og ríkisstjórn, að reist
verði þegar á næsta ári síldarbræðslustöð
á Austurlandi, en óskar jafnframt eftir
þvi, að athugað verði áður hvort tiltæki-
legt þyki að byggja 2 minni stöðvar handa
fjórðungnum, er vinni jafnframt úr fiski-
úrgangi. Verði ein bræðslustöð byggð, þá
sé jafnframt séð fyrir fullnægjandi flutn-
ingi síldarinnar til bræðslustöðvarinnar
frá öðrum veiðistöðvum á Austurlandí«.
2. Samvinnumál. »Fjórðungsþingið
beinir því til fjórðungsþingsstjórnar og
stjórna fiskifélagsdeilda að gangast fyrir
því, að stofnuð verði sölusamlög á salt-
fiski (verkuðum og óverkuðum) meðal
útgerðarmanna og sjómanna í Austfirð-
ingafjórðungi«.