Ægir - 01.03.1931, Síða 11
ÆGIR
57
9. Djúp-hiiamœlingar. — »Þingið felur
forseta sínum að kaupa einn djúp-hita-
mælir, samkv. 2. lið fjárhagsáætlunar, og
leggur til að hann verði fenginn til af-
nota athugulum formanni hér í fjórð-
ungnum, gegn 100 kr. þóknun, sem sé
bundin því skilyrði, að hann gefi að ver-
tið lokinni skýrslu yfir djúpmælingarnár,
svo nákvæma, sem tök eru á. Sé gengið
út frá því, að mælingar fari fram eigi
sjaldnar en viku eða bálfsmánaðarlegacc.
10. Kosning tveggja fulltrúa á Fiski-
þing til næstu 3ja ára: Aðalfulltrúar:
Sveinn Arnason með 6 atkv., Friðrik
Steinsson með 7 atkv. Varamenn: Níels
Ingvarsson og Marteinn Þorsteinsson.
11. Kosin stjórn fjórðungsþingsins: For-
seti Marteinn Þorsteinsson, með 5 atkv.
Ritari Hermann Þorsteinsson, með 8 at-
kv. Varaforseti Níels Ingvarsson. Vara-
ritari Eirikur Bjarnason.
12. Fjárgeymsla. »Fjórðungsþingið sam-
þykkir að fela ritara sínum fjárgeymsl-
una til næsta þings«.
Samþykkt með 6 samhljóða atkv.
Samþ. að næsta fjórðungsþing skuli
haldið í Neskanpstað.
Fundargerðin uppl. og samþ.
Fjórðungsþinginu slitið.
Herm. Þorsteinsson, Mart. Þorsteinsson,
Jón Oddsson, Vilhj. Arnason,
N. Ingvarsson, Sveinn Arnason,
E. Bjarnason, M. Jensen,
Hallgr. Bóasson, Gisli Kristjánsson,
• Friðrik Steinsson.
ingar á lögum Fiskifélags íslands, áður
en það verður gert að lögum:
Við 3. gr. Að orðið »ársfélagar« falli
burtu, og töluröðin breytist eftir því.
Við 4. gr Ákvæðið um árstillag falliburt.
19. gr. byrji svo: Æfitillögum og skatti
frá deildum er greiðist o. s. frv.
20. gr. Nefndin leggur til að aðaldeild
sé mynduð af æfifélögum um land allt,
heiðursfélögum og deildum Fiskifélags-
ins, en ekki ársfélögum. Ársfélagar í
Reykjavík myndi sérstaka deild, er hafi
sömu aðstöðu til Fiskifélags ísalands og
aðalfundar, eins og aðrar fiskifélagsdeidir.
— Á aðalfundi eigi kosningarrétt og kjör-
gengi, æfifélagar, heiðursfélagar og full-
trúar frá deildum, með þeim rétti, er
þeir nú hafa samkv. 18. gr. gildandi laga
og komi þá ekki til greina ákvæðið um
fasta búsetu í Reykjavik til að aðalfund-
ur sé lögmætur, heldur verði lögmæti
hans miðað við að ákveðinn hluti þeirra,
er aðaldeild mynda, mæti á fundinum.
21. gr. 4. liður: að allur ársskatturinn
frá deildum renni í fastasjóð.
Samþ. með 7 samhlj. atkv.
Fjórðungssambönd. 3. gr. Ákvæðið um
hálfs árs skatt falli burtu.
Samþ. með 6 samhlj. atkv.
8. Fjárhagsáœtlun fyrir fjórðungsþing
Austfirðingafjórðungs 1931.
Tek j ur:
fillag frá Fiskifél. íslands . kr. 1000.00
Samtals kr. 1U00.00
Gjöld:
f • Kostnaður við fjórðungþing-
hald 1931...............kr. 300.00
Kostn. við djúpmælingar . — 225,00
T Til sundlaugarbyggingar á
Fáskrúðsfirði, gegn ekki
niinna entveimþriðju kostn.
annarsstaðar frá.........— 400,00
4- Óviss útgjöld...........- 75.09
Samtals kr. 1000,00
Lóðamerki. »S/ö/n« MB. 66 Akranesi.
Sýslum erki: Blátt á miðjum taum og
svart við ás.
»Sœfari« MB. 11 Akranesi. Sýslu-
merki: Blatt á miðjum taum, grænt
við ás og rautt við öngul.
y>Aldana MB. 77 Akranesi. S ý s 1 u -
merki: Blatt á miðjum taum, gult við
öngul, rautt við ás.