Ægir - 01.03.1931, Qupperneq 14
60
ÆGIR
ári um 3250 skpd. af útlendum skipum,
það var um 1000 skpd. minna en árið
1929. Fiskur keyptur af útlendum skip-
um, var keyptur á Seyðisfirði og Norð-
firði, og sundurliðast þannig :
Á Seyðisfirði var keypt af 1G færey-
iskum skipum og 4 norskum skipum
samtals 926 skpd.
Á Norðfirði var keypt af 8 færéyiskum
skipum og 16 norskum skipum, samtals
2324 skpd.
Hagnaður af þessum útlendu fiski-
kaupum, býst ég við að verði með minnsta
móti á þessu ári, enda máske skaðlítið
þó sú verzlun leggist niður, því það hef-
ur virzt, að hún hafi ekki verið rekin
eins og vera ætti, og sennilega affara-
sælla fyrir þá menn, sem hafa haft þessa
verzlun með höndum, og það fáa fólk,
sem haft hefur atvinnu við það, að snúa
sér að einhverri annari atvinnu til lands
eða sjávar.
Ég ferðaðist um firðina i október í
haust, og kom þá aðallega við á Eski-
firði, Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði. Á Eski-
firði hélt ég fund í fiskifélagsdeildinni,
sem varð til þess að blása lífi í hana, á
Eskifirði hélt ég líka fund í deildinni, en
á Reyðarfirði gat ég ekki fengið komið
á fundi, bæði vegna anna í sláturtíðinni
og þó sérstaklega vegna þess, að ýmsir
af aðalstyrktarmönnum deildarinnar voru
ekki heima. En þessi ferð mín varð þó
til þess, að deildin var endurreist, greiddi
skatt fyrir árið 1930, og það virtist vera
að vakna þar mikill áhugi fyrir sjávar-
útvegsmálum. Á Norðfjörð kom ég á ferð-
unum fram og til baka, og átti tal
við stjórnarmenn deildarinnar þar, og
aðra málsmetandi menn, og voru þeir
allir með brennandi áhuga fyrir því að
Fiskifélagið og deildir þess, mættu og
gætu starfað sem mest og bezt fyrir sjáv-
arútvegsmálin. Allstaðar á þeim fundum
sem ég var á, í fiskifélagsdeildunum,
bæði hér og suður á fjörðum, kom fram
mikill áhugi fyrir öllum útgerðarmálum,
og ég verð að segja það að lífið í fiskifé-
lagsskapnum hér á Austurlandi, er nú
sæmilega gott. Því til stuðnings, að þelta
álit mitt sé á rökum byggt, vil ég vísa
til Fjórðungsþings-fundargerðarinnar og
þess, að þar voru mættir 11 fulltrúar frá
7 Fiskifélagsdeildum, sem allar höfðu
haldið einn, tvo og sumar þrjá fundi til
undirbúnings mála fyrir Fjórðungsþingið.
Fjórðungsþingið var haldið 15. til 17.
des. s. I. Fundargerð þess er að sjá í
»Ægir«.
Mótorvélanámsskeið var haldið hér á
Seyðisfirði í vetur, og byrjaði 8. des. s.
1. Yfir 20 nemendur sóttu um inntöku
á það, en sumir (tveir) hættu strax. Tveir
hættu síðar, en 18 voru út allan tímann,
þar af náðu 17 góðu prófi, sumir ágætis-
prófi, en einn stóðst ekki prófið Kenn-
ari við námsskeiðið var Jens Sigurðsson
vélfræðingur frá Reykjavik, og þótti hann
leysa það starf vel af hendi.
Að svo mæltu lýk ég máli minu í
þetta sinn, en skal þó geta þess að end-
ingu, að bréf það er ég sendi til allra
útgerðarmanna um miðjan nóvember s.
I., um beitukostnað og beitunotkun, hef-
ur ekki verið svarað nem í af örfáum
mönnum. Ég vil því nota tækifærið og
skora á alla þá útgerðarmenn hér á Aust-
urlandi, sem lesa þessa skýrslu, og sem
fengu umrætt bréf frá mér, að senda
mér sem fljótast skýrslu um beitunotkun
og beitukostnað, að minnsta kosti fyrir
s. 1. ár, þó ekki sé meira.
Seyðisfirði 5. febr. 1931.
Virðingarfyllst
Herm. Þorsteinsson.