Ægir - 01.03.1931, Síða 19
ÆGIft
65
áttum við að stríða, er að minnsta kosti
ekki hægt að segja annað en reikningur-
inn væri mjög sanngjarn, en þrátt fyrir
það fékk ég ekki reiknínginn greiddan,
fyr en eftir mikið þref, stapp og stríð,
en sennilega verð ég aldrei jafngóður,
eftir þá næturdvöl á Hafnabergi, i fulla
6 klukkutima, í hvínandi roki og slag-
viðri, allur blautur inn að skinni, og
blóðmarinn á báðum fótum.
Síðan þetta skeði, hefur það verið, er
og verður, sannfæring mín, að breska
stjórnin, leggi ekki ýkja þung lóð á metin,
þegar hún vigtar lífsverðgildi þeirra þegna
sinna, sem hrifnir eru úr dauðansgreip-
um á elleftu og síðustu stundu, af ís-
lenzkum alþýðumönnum.
Eg ætla að geta þess hér, að þegar ég
bjargaði af þýzka botnvörpungnum
»Grænland«, sæmdi keisarinn mig gull-
medalíu (rauðu arnarorðunni), auk þess
tékk ég stórgjafir, og þakkarorð í þýzk-
um blöðum, fj'rir björgun og móttöku
skipbrotsmannanna, og hefi ég þó ekkert
gert fyrir þýzku þjóðma, við það sem ég
hefi gert fyrir þá ensku, en þakklætis-
og drenglyndis mismun beggja þessara
stórvelda, vildi ég gjarnan mega vigla
fyrir augum brezku stjórnarinnar, um
leið og hún vigtar lifsverðgildi þeirra
þegna sinna, sem ég með félögnm mín-
om hefi hrifið úr greipum dauðans.
13. 8trandið.
10. nóv. 1917, strandaði fyrir neðan
Kalmannstjörn, islenzkur mótorbátur af
Eyrarbakka, »Einingin«. Strandaði bát-
Ufinn um kvöldið í austanbyl. en engu
hvassviðri, náðum við mönnunum strax
um kvöldið (5 mönnum). Um morgun-
mn var báturinn sokkinn; var hann hlað-
Iun matvöru o. fl. sem allt fór í sjóinn,
eu rak þó til lands, að mestu, meira og
minna skemmt. Báturinn brotnaði svo
litlu seinna í mél, í stórbrimi.
14. strandið.
Hinn 27. jan. 1925, strandaði undir
Hafnabergi, þýzkur botnvörpungur »Bay-
ern«, varð strandsins ekki vart fyr en
daginn eftir, var skipið þá komið í mask,
og fórust allir skipverjar. Nokkrum dög-
um seinna rak lík skipstjórans; var það
flutt til Reykjavíkur og jarðsungið þar.
15. strandið.
Hinn 27. okt. 1927, strandaði skammt
fyrir sunnan Kalmannstjörn, þýzkur botn-
vörpungur »BiIwárder«. Björguðum við
öllum mönnunum á kaðli (körfu) í land
og næstu daga var öllum fiski og kolum,
og allri áhöfn bjargað, tapaðist ekkert
smátt né stórt, sem skipi þessu til heyrði.
16. strandið.
Hinn 22. 1929, strandaði skammt fyrir
sunnan Hafnaberg, þýzkur botnvörpung-
ur »Alteland«. Strandaði skipið um stór-
straumsflóð, og gengu skipverjar sjálfir
úr því þurrum fótum. Miklu varbjargað
úr skipi þessu, en fór fyrir sárlítið verð,
því aðstaða er afarvond, ægisandur og
strandið fjarri öllum mannabyggðum.
Pá eru upptalin öll þau strönd, sem
komið hafa fyrir í Hafnahreppi, síðast-
liðin 130 ár, en tvö skip hafa strandað
hér, sem losnuðu aftur, og eru þau því
ekki talin með.
Ól. Ketilsson.