Ægir - 01.03.1931, Qupperneq 20
66
ÆGIÍÍ
Ólafur Ketilsson
hreppstjóri.
Myndin, sem þessari skemmtilegu frá-
sögu, eða öllu fremur skýrslu, fylgir, er
af höfundinum, hreppstjóra Ólafi Ketils-
syni. Um leið og ég, sem ritstjóri »Ægis«,
þakka honum fyrir grein, sem er prýði
fyrir ritið og tekur af ýmsar missagnir,
er fram liða stundir, get ég þakkað hon-
um, frá ýmsum lesendum »Ægis«, sem
hafa rekið á eftir að framhald kæmi, en
því miður er rúm svo takmarkað, að
vart hefur verið auðið að birta hið bráð-
nauðsynlegasta, bæði ársyfirlit og ýmsar
skýrslur, frá erindrekum, fundahöldum
og aflaskýrslur, sem verða að sitja fyrir
öllu.
Vænta ýmsir þess, að fleira birtist á
prenti eftir Ólaf, enda fer bezt á því, að
frásagnir eins og þær um skipströnd.sem
hann hefur birt, séu skráðar meðan nógir
vottar eru á lifi, sem geta borið um,
hvort rétt sé skýrt frá eða ekki.
Margir fróðir menn eru hér, sem veigra
sér við að skrifa, af ótta fyrir að mál-
færi og stafsetning verði gagnrýnd er það
birtist á prenti, og þá fundið léttvægt,
með málfræðilegum göllum og fleiru, en
meðan hér er voðalega spennandi að fara
til altaris, Reykjavíkurband spilar, rétt-
ritun er öðruvísi nú. en hún var fyrir
2—3 árum og verður ef til vill önnur
eftir nokkur ár, þá er óþarfi að verða
feiminn, þótt fundið sé að einu og öðru
í blaðagrein. Er leitt til þess að vita, að
ýmiskonar fróðleikur glatist með öllu,
af ótta fyrir illri meðferð á höfundi er
hann kemur opinberlega fram, með sanna
viðburði, almenningi til gagns og gamans.
Það hefur verið lalað um, að »Ægir«
hefði fáa kaupendur og satt er það, að
vænta mætti þess, að fleiri sjómenn
keyptu rilið en verið hefur. Skýrslur og
töflur eiga að sitja fyrir, en almenningur
heimtar meira með, og sökum þess að
Ægir er hið eina rit islenzkt, sem um
fiskiveiðar og farmennsku fjallar, þá á
vel við, að sjóferðasögur birtust þar endr-
um og sinnum, til að fjörga lesendur,
því það er víst, að þær eru vel séðar,
einkum þær, sem skýra frá ýmsu, sem
núlifandi menn kannast við oggetavitn-
að, að sannar séu. Ekki myndu þær
draga úr kaupendatölu. Það er t. d. ó-
missandi í sögu landsins, að fá að sjá
það á prenti og sannanlegt, að ólafur
Ketilsson skuli við Í2. strandið, sem menn
ættu að lesa með athygli, setja 1 kr. og
25 aura um klukkustund, fyrir aðra eins
vinnu og þar var látin í té, auk skips-
láns og eiga á hættu að missa það, og
svo að lokum eiga i stímabraki að fá
þelta greitt. Aðeins þetta atriði er svo
merkilegt, að ég tel óvíst að önnur tíma-
rit landsins hafi fært lesendum sínum
meiri fróðleik. Svbj. Egilson.