Ægir - 01.03.1931, Qupperneq 22
68
ÆGÍR
Allmikill útflutningur hefur verið til
Bresku Vesturindía og Porto Rico, en
verðið hefur verið lágt og hagnaður lítill.
Til miðs janúar hefur verið útflutt af
fyrra árs afla 36 þús. quintalar til Porto
Rico og sama til Jamaica og 2000 quin-
talar til Kuba. Alls hefur verið úlflutttil
Vesturindiaeyjanna á þessu tímabili 92
þúsund quintalar á móti 43 þús. quin-
tölum á sama tima í fyrra.
Beituskortur sá, sem vér höfum getið
um í fyrri bréfum, hefur orðið til þess,
að á mörgum stöðum i Newfoundlandi
er búið að reisa hús til að frysta og
geyma beitu í. Beitugeymsluhús þessi
eru úr timbri með tvöföldum veggjum,
gólfi og þaki. Millibilið er 8 þuml. og er
fyllt með sagi. í húsin eru settir galv.
járngeymar, sem eru fylltir muldum ís.
Verð slíks húss er talið vera 3000 doll-
arar. Ráðgert er að byggja slík hús í
helztu veiðistöðvum.
Úr bréfi frá aðalkonsúlnum i Montreal.
Frakkneski fiskiflotinn. í ár eru liðin
500 ár, siðan 30 frakknesk skip lögðu af
stað til veiða við íslandsstrendur, i fyrsta
sinn.
Árið 1885 veiddu 314 frakknesk skip
hér við land, en árið 1931 gengu aðeins
frá Paimpol. 7 skonnortur, frá Gravelines
13 stórir kúttarar og 10 botnvörpuskip.
Að líkindum leggur að eins út 3/j af
fiskiflotanum frá St. Malo til djúphafs-
veiða (»grande péche«) næsta vor; eru
það um 40 seglskip og af þeim verða að
eins 6, sem fara til Newfoundlands, en
hin ætla að leita gæfunnar á hinum nýju
fiskislóðum við Grænland.
Hækkun á aðflutningsgjaldi á fiski
til Frakklands. Tillögur frönsku ríkis-
stjórnarinnar um tollupphæðirnar, hafa
nú náð samþykki þingsins, að því frá-
skildu, að felld hefur verið burtu tillag-
an um tollhækkun á þorskalýsi.
Með frönskum lögum dags. 14. febr. s.
1., hefur aðflutningsgjaldið á þurkuðum
saltþorski þvi verið hækkað úr 81.60 fr.
upp í 150 fr. pr. 100 kilo, en á ýsu úr
81.60 fr. upp í 200 ír. pr. 100 kilo. Á
nýjum eða frosnum fiski hefur tollurinn
jafnframt verið hækkaður frá 34 upp í
100 fr. pr. 100 kilo.
(Tilkynning frá Stjórnarráöinu 12. marz 1931)
Nýi hafnarbakkinn
hrynur.
KI. 11 l/a hinn 6. marz fór varðmaður-
inn á »Suðurlandi«, Jason Sigurðsson,
Brekkustig 14, að taka eftir smáhvellum
og brestum. Á fyrsta tímanum ágerðust
þessir hvellir, og voru margir eins og
byssuskot, og eínnig ágerðist brakið, þar
til kl. 1, að nokkur hluti af nýja hafn-
arbakkanum sprakk fram að neðanverðu
með miklu braki og bramli. Varð Jason
í fyrstu hræddur um, að járnið myndi
lenda á skipinu, en sá fljótt að svo myndi
þó ekki verða, því það var að neðan-
verðu, að járnin í bakkanum sprungu
fram. Er hann sá að skipið var ekki
i neinni hættu, fór hann upp í hafnar-
skrifstofu til að láta menn vita. En hítti
þar engan, þvi að næturvörður á hafn-
arskrifstofunni mun hafa verið að snú-
ast i öðru. Fór hann þá á tollstöðina og
bað tollvörðinn að hringja á hafnarskrif-
stofuna að láta vörðinn vita um þetla.
Jason segir, að eftir á að hyggja, þá
muni brestirnir hafa byrjað fyrir kl. II1/3
þótt þeir væru ekki svo miklir fyrir þann
tima að hann veitti þvi sérstaka athygli.