Ægir - 01.03.1931, Blaðsíða 26
72
ÆGIR
Skemmdir í Hafnarfirði
af laugardagsofviðrinu.
14. febr. 1931.
Laugardaoinn 14. febrúar 1931, gerði
afspyrnurok af suðvestri og gekk i há-
vestur þegar hvassast var, eða um kl.
6 um kvöldið. Sleit þá tvo linnbáta, Elj-
una og Namdal, er lágu i austurkrikan-
um við gömlu bryggjuna. frá bryggjunni
og rak þá báða beint á landálmu nýju
bryggjunnar. Voru þeir að lemjast við
bryggjuna þar til um nóttina að veðrinu
slotaði og þeir voru dregnir upp í f|öru.
Bæði skipin skemmdust mjög mikið.
Af Namdal brotnuðu bæði siglutrén og
flest annað ofan þilja meira og minna.
Sjálfur skipsskrokkurinn brotnaði einnig
mikið og bramlaðist. Eljan skemmdist
mjög, aðallega stjórnborðsmegin.
Skemmdirnar á nýju bryggjunni urðu
allmiklar. Brotnuðu 16 staurar alveg í
yztu röð á landálmunni og 5 staurar
skemmdust mikið. Einnig brotnuðu og
skemmdust mörg tré og skástífur og þilj-
ur álmunnar gengu upp á alllöngu svæði.
Þar að auki skekktist eitt »ok« ofarlega
í álmunni og myndaðist þar bogi á bryggj-
unni.
Þrátt fyrir þessar skemmdir álitur bæj-
arstjóri, að hagt verði að nota bryggjuna
á vertiðinni og að viðgerð á henni þurfi
ekki að stöðva notkun hennar. Skemmd-
irnar hafa ekki verið metnar enn og
verður ekki byrjað á viðgerð á bryggj-
unni fyr en að þeirri matsgerð lokinni.
Sjópróf út af þessum skemmdum,sem
urðu á línubátunum og bryggjunni, var
haldið í Hafnarfirði mánudaginn 16. febr.
Þykir ekki tímabært að svo komnu máli,
að skýra neitt nánar frá því, er fram
kom í prófinu. Þess skal þó getið, að
sjórétturinn í Hafnaríirði fór þess á leit
við sjórétt Reykjavíkur, að hann útnefndi
menn til að meta skemmdirnar á skip-
unum og bryggjunni.
Eljan hefur verið dæmd ónýt.
t
Kaupmaður Ólafur Ófeigsson
í Keflavík, er nýlátinn á spítalanum í
Hafnarfirði.
Hann var jarðaður í Keflavík, mið-
vikudaginn 18. marz og fylgdi honum
tjöldi manns til grafar.
Verðlagsnefnd línuveiðaraeigenda og
sjómannalélaganna hefur ákveðið, að það
tímabil, sem af er árinu og til kl. 12 á
miðnætti aðfaranótt 28. marz skuli verð
á fiski og lýsi reiknast sem hér segir:
Stórfiskur 24 aura kg.
Smáfiskur 21 eyri —
Lýsi 671 /2 - —
Samkvæmt þessu ber um þetta áður-
nefnda límabil að greiða aflaverðlaun á
línugufuskipum svo sem hér segir:
Af línuf., stórf., lágmark 6 kr af smál.
Af linuf., smáf. og öðrum fiski 4,50 af —
Af netafiski..............5,00 - —
Af hverjum 105 kg. lýsis 1,12
í netndinni eru sömu menn og í fyrra :
Kristján Bergsson (dómkvaddur), Páll
Ólafsson og Þórarinn Böðvarsson út-
nefndir af útgerðarmönnum, en Björn
Jóhannesson og ólafur Friðriksson, út-
nefndir af sjómannafélögunum.
Ritstjóri: Sveinbjörn Egilson.
RíkisprentsmifSjan Gutenberg.