Ægir

Årgang

Ægir - 01.01.1932, Side 7

Ægir - 01.01.1932, Side 7
ÆGIR MÁNAÐARIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS 25. árí Reykjavik. — Jan. 1932. Nr. 1. Sjávarútvegurinn 1931. Eftir Kristján Bergsson. Árið 1931, sem nú er að enda, hefur orðið mörgum mönnum mikil vonbrigði. Óvenjumikill afli kringum allt landið, nema á Austfjörðum. Síldveiði sömu- leíðis yflr sumarmánuðina og haustsild að sumarveiðinni lokinni, bæði á Norð- ur- og Austurlandi fram undir áramót, en verðfall á ílestöllum sjávarafurðum svo ægilegt, að heita má að öll útgerð landsmanna liggi nú í molum um ára- naótin. Eg gat þess i síðustu ársskýrslu minni, (Ægi 1. tbl. 1931), að fiskbirgðir þær sem óseldar væru, voru svo miklar, að þær niundu halda fiskverðinu niðri og lækka verðið á nýju framleiðslunni. Það var strax nokkur uggur i útgerðarmönnum i ársbyrjun, og vertíð yfirleitt byrjuð nokkuð seinna sunnanlands en vant er, t. d. var fyrst farið til fiskiar úr Kefla- vík 15. janúar, og eigendur togaranna bundust samtökum um að láta þá ekki fara á saltfisksveiðar fyr en eftir 20. marz, til þess að draga sem mest úr salt- fisksframleiðslunni. Árið byrjaðí með verkfalli á línuveiðagufuskipum og stóð það til 14. febrúar að samningar komust á, að mestu leyti óbreyttir frá því sem áður var, þó hækkaði aflahluti háseta á síldveiðum litið eitt, úr 33730/# í 35°/o. Petta hvorttveggja dró mjcg úr salt- fisksframleiðslunni, að minnsta kosti það fyrtalda, þó það væri ekki nægilegt til þess að halda birgðunum í hæfilegum takmörkum, og halda uppi eftirspurn- inni á saltfiskinum, enda kom fleira til greina, þegar leið fram á sumarið, sem olli verðfallinu og ýtti því af stað. Á Akranesi byrjaði árið með kaup- deilu milli útgerðarmánna og sjómanna, sem jafnaðist fljótt. Tið var all-óstillt fyrstu mánuði ársins sunnanlands og fram undir miðjan fe- brúar aflalítið, en þá kom mjög kröftug fiskiganga í Faxaflóa og veiðistöðvunum þar í kring, og var þá landburður af fiski um tíma. 14. febr. gerði aftakaveð- ur af norðri og urðu þá töluverðar skemmdir á skipum og bátum viða, með- al annars skemmdust þá svo gufubát- arnir Eljan og Namdal í Hatnarfirði, að þeir voru dæmdir ósjófærir, þó var Nam- dal fluttur til Noregs til viðgerðar, seinna um sumarið af skipstjóra af norsku há- karlaveiðaskipi, sem keypti hann. Á Vesturlandi byrjaði árið strax með

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.