Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1932, Blaðsíða 43

Ægir - 01.01.1932, Blaðsíða 43
ÆGIR 37 Gunnólfsvíkur um meðmæli með hafn- arbót þar. Málinu visað til 1. nefndar. Eftirfarandi mál tekin fyrir: í. Veðurfregnir. Nefndartillaga: 1. »Fjórðungsþingið lítur svo á, að nauðsynlegt sé að birta veðurfregnir sem oftast og á sem flestum stöðum. En þar sem ákveðið hefur verið að breyta um fyrirkomulag á birtingujveðurfregna, þá lítur þingið svo á, að of lítil fjárhæð sé veitl til þessara birtinga. Því skorar Fjórð- ungsþingið á Fiskiþing að beita sér fyrir þvi, við Alþingi, að fjárveitingin, sem Fiskifélaginu er ætluð til veðurskeyta- birtinga, verði hækkuð um helming. 2. Hins vegar er Fjórðungsþingið mót- fallið þvi, að hætt sé algerlega við að láta Landsímann birta veðurfregnir, tel- ur æskilegt, að hvorttveggja, Fiskifélagið og Landssíminn, annist birtingu veður- fregna«. Fyrri liður samþ. með 3 :1 og síðari með 4:1. 2. Sjóskaðatrygingar. Nefndartillaga : »Fjórðungsþingið felur fulltrúam sín- um, bverjum í sínu umdæmi, að vekja athygli úlgerðarmanna báta og skipa, 12 smál. og þar yfir, á nauðsyn þess, að þeir vátryggi eignir skipverja, þar sem þeir, samkv. reglum »um greiðslu bóta fyrir eignir islenzkra skipverja, þær er farist hafa við sjóslys, frá 10. júlí 1931«, eru skyldir til að greiða skipverjum tjón- ið, sem getur orðið allhá upphæð«. Samþ. með öllum atkv. 3. Námsskeið. Nefndartillaga: »Nefndin leggur til að haldin verði í vetur, undir umsjón Fjórðungsstjórnar, þriggja vikna verkleg sjómannanámsskeið svipuð þeim, sem hafa verið haldin áð- ur hér í fjórðungnum og að þessu sinni lögð sérstök áherzla á, að kenna viðgerð og uppsetningu á dragnótaveiðarfærum og viðgerð á seglum. Ætlast nefndin til, að námsskeið þessi séu haldin að minnsta kosti á þremur stöðum í fjórðungnum, og stjórn Fjórðungsþingsins falið að út- vega 200 kr. til hvers námsskeiðs, til launa og ferðakostnaðar kennara, gegn því, að deildirnar eða einstakir menn á hverjum stað leggi honum til fæði og húsnæði ókeypis, meðan á námsskeið- inu stendur og að deildirnar leggi til húsnæði og verkefni fyrir námsskeiðin. Nemendur greiði ekki minna en 10 kr. hver i kennslugjald. Nefndin telur víst að til námsskeiða þessara fáist allt að 600 króna styrkur af þeim upphæðum, sem ætlaðar eru til námsskeiða á fjárhagsáætlun Fiskifélags Islands fyrir árin 1931—32, en að öðru leyti séu námsskeiðin kostuð af fé því, sem Fjórðungsþingið hefur til umráða. að svo miklu leyti, sem þörf krefur«. Svo hljóðandi breytingartillaga kom fram frá Friðrik Steinssyni: »Fjórðungsþingið felur erindreka Aust- firðingafjórðungs að leitast fyrir um mögu- leika til að halda sjóvinnunámsskeið á Austfjörðum í vetur. — Telur Fjórðungs- þingið æskilegt, að námsskeið þessi verði haldin á tveim slöðum að minnsta kosti,og yrði að þessu sinni sérstök áherzla lögð á að kenna uppsetningu og viðgerð á dragnótum og viðgerð á segl- um. Fjórðungsþingið gengur út frá því að Fiskifélag íslands muni fúslega kosta þessi námsskeið, þar sem það hefurvið- urkennt þörf á slíkum námsskeiðum og ávalt slyrkt þau að nokkru, og auk þess er á fjárhagsáætlun félagsins fyrir árið 1931—32 áætluð mun hærri upphæð til námsskeiða en varið var til þeirra árin

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.