Ægir - 01.01.1932, Blaðsíða 47
ÆGIR
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
AÐALFUNDUR
Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélag íslands
verður haldinn í Kaupþingssalnum í húsi félagsins í
Reykjavík, laugard. 25. júní 1932 og hefst kl. 1 e. h.
DAGSKRÁ:
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og fram-
kvæmdum á liðnu starfsári, og frá starfstilhöguninni
á yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir henni, og
leggur fram til úrskurðar endurskoðaða reksturs-
reikninga til 31. des. 1931 og efnahagsreikning með
athugasemdum endurskoðenda, svörum stjórnarinnar
og tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um
skiptingu ársarðsins.
3. Kosning fjögra manna í stjórn félagsins, í stað
þeirra sem úr ganga samkvæmt félagslögunum.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá
fer, og eins varaendurskoðanda.
5. Tillögur til breytinga á lögum félagsins.
6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál,
sem upp kunna að verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. Aðgöngumiðar að fundinum
verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í
Reykjavík, dagana 23. og 24. júní næstkomandi. Menn geta fengið eyðublöð
fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík.
Reykjavík, 21. desember 1931. STJÓRNIN