Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1932, Blaðsíða 40

Ægir - 01.01.1932, Blaðsíða 40
34 ÆGIR þingið til að stofnað verði sildar- sölusamlag, annaðhvort lögverndað eða á samvinnugrundvelli. 2. Þá skorar Fjórðungsþingið á Fiski- þingið, að hlutast til um, að síldar- tollur þessa árs verði eftirgefinn, en þar sem síldareigendur fá að eins 2 krónur fyrir hverja tunnu síldar og að næsta Alþingi breyti síldartolls- lögunum þannig, að eftirleiðis verði ákveðinn verðtollur af síld á sama hátt og nú er um aðrar afurðir landsmanna. 3. Ennfremur krefst Fjórðungsþingið þess, að flugtollur af síld verði með öllu afnuminn. Fyrii hluti 1. liðs (1 a.) samþykktur með öllum atkvæðum, en seinni hlutinn (1 b.) felldur. 2. og 3. liður samþykktir í einu hljóði. 12. Fiskisölusamlagsnefndin lagði fram svo hljóðandl nefndarálit í lánsstofnunar- málinu: »Nefndinni er vel Ijós nauðsyn þessa máls, en samkvæmt reynzlu og þing- sögu undanfarandi ára, sér hún ekki til neins að bera fram neinar nýjar tillögur í málinu, en leyfir sér aðskír- skota til 2. liðs í tillögum nefndar þeirrar, sem hafði þetta mál til með- ferðar á fulltrúafundi i jan. s. ,1. Vill nefndin að öðru leyti æskja þess, að væntanlegir Fiskiþingsfulltrúar vinni að framgangi málsins, eftir því, sem föng eru til«. Fundurinn féllst eindregið á álit nefnd- arinnar. 13. Slysatryggingarnefndin lagði fram i landhelgismálinu svo hljóðandi tillögu í 2. liðum: a. Fjórðungsþingið skorar á Fiskiþing íslands, að beita áhrifum sinum ein- dregið í þá átt að Alþingi og stjórn leitíst við, á alþjóðafundum, að fá landhelgi íslands færða út um mínnst einn mílufjórðung, þar sem sannan- legt er að landhelgi Islands er ein- hver bezta klakstöð í norðurhöfum. b. Fjórðungsþingið skorar á Fiskiþing- ið, að beita sér fyrir þvi af alefli að varðskip rikisins verði eingöngu not- uð til strandvarna og björgunar, en ekki til óþarfa sendiferða eða legu á höfnum inni«. Tillagan samþykkt með öllu atkv. 14. Hlutaráðning sjómanna. Framsögu- maður Jón Sigurðsson. Flutti hann skýra ræðu og eftir töluverðar frekari umræð- ur var samþykkt svo látandi tillaga: »Fjórðungsþingið skorar á fulltrúana, að vekja máls um þetta efni hver í sinni veiðistöð og láta undirbúa mál- ið undir væntanlegan fulltrúafund í vetur. En jafnframt leggur Fjórðungs- þingið áherzlu á að hlutaráðningu verði haldið áfram, svo sem kostur er«. 15. Erindreki Fiskifélags Islands á Norð- urlandi, Páll Halldórsson, gaf skýrslu um starf sitt í þarfir félagsins og deild- anna. 16. í fjárhagsnefnd voru kosnir: Stefán Jónasson, Jón Sigurðsson og Þorsteinn Stefánsson, með hlut- kesíi milli hans og Páls Halldórssonar. Þegar hér var komið, var kl. 7 e. h. og sleit þá forseti fundi og boðaði jafn- framt nýjan fund kl. 9 f. h. í fyrramálið. Fimmtudaginn 5. nóvember var3. þing- fundur settur kl. 9 f. h. 17. Var þá fyrirtekið 7. mál dagskrár- innar: Veðurskeyti og varúðarráðstafanir, er kom úr nefnd. Nefndin lagði fram svo hljóðandi tillögu. »Fjórðungsþingið skorar fastlegaá Fiski- þingið, að hlutast til um það við rétta hlutaðeigendur að veðurspár verði dag- lega birtar í öllum stærri veiðistöðum

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.