Ægir - 01.01.1932, Blaðsíða 38
32
ÆGIR
málutn, í stórum dráttum, er umbjóð-
endur höfðu falið þeim, til leiðbeiningar
við dagskrár-samningu, en regluleg fram-
saga eðlilega geymd til dagskrárliða um
þau efni.
Fundi frestað til kl. 3r/a e. m.
Fundur settur aftur kl. 4 e. m. Var
þá mættur með simaumboði frá Dalvík-
urdeild, Tryggvi Jónsson Dalvík, og tók
sæti sem fulltrúi þeirrar deildar á þing-
inu, ennfremur fyrir fiskifélagsdeildina
»Ströndin« á Árskógsströnd, útgerðarm.
Haraldur Guðmundsson Akureyri, einnig
með símaumboði.
Kjörbréfanefnd kvað þá upp úrskurð
um að allir mættir fulltrúar hefðu lög-
leg umboð.
Þá gat forseti, að hann hefðiráðið Pál
Einarsson kaupmann sem ritara þings-
ins. Var það samþykkt.
Var þá gengið til kosningar um dag-
skrárnefnd og hlutu kosningu :
Páll Halldórsson,
Stefán Jónsson og
Jón Sigurðsson, með hlutkesti milli
hans og Porsteins Stefánssonar.
Nefndin tók þegar til starfa og lagði
fram, eftir nokkra stund, svohljóðandi
dagskrá:
1. Fiskisölusamlög Norðurlands.
2. Slysavarnir, sundskyldunám ogbjörg-
unarskip.
3. Sjóskaðatryggingar.
4. Sildarútvegsmál.
5. Lánsstofnun fyrir smáútgerð lands-
manna.
6. Landhelgismál.
7. Veðurskeyti og varúðarráðstafanir.
8. Hlutaráðning sjómanna.
9. Dragnótaveiði.
10. Sk^Tsla erindreka Fiskifélags Islands.
11. Fiskimatsmál.
12. Fjárhagsmál.
13. Önnur mál, sem fram kunna að
koma.
14. Ákveðinn næsti þingstaður.
Forseti bar dagskrána undir atkvæði
og var hún samþykkt breytingalaust.með
öllum atkvæðum.
1. Fyrsta mál dagskrárinnar, Fiskisölu-
samlög Norðanlands, var síðan tekið fyrir
og var Páll Halldórsson frummælandi,
mælti hann itarlega og röggsamlega með
þvi, að þingið hrindi máli þessu fram og
stakk upp á því, að málinu verði vísað
til nefndar. Var því síðan visað til 4 manna
nefndar og eftir uppástungu forseta voru
þessir fulltrúar kjörnir i hana:
Þorsteinn Stefánsson,
Haraldur Guðmundsson,
Einar Sörensson og
Páll Halldórsson.
2. Slysavarnir,sundskyldunám ogbjörg-
unarskip. Forseti skýrði málið. Urðu sið-
an töluverðar umræður um það og var
því síðan vísað til nefndar, sem í voru
kjörnir:
Jón Sigurðsson,
Tryggvi Jónsson og
Stefán Jónasson.
3. Sjóskaðatryggingar. Forseti hóf máls
um þennan lið dagskrárinnar. Gat hann
þess að undir þennan lið ætti að taka
hvorltveggja i senn, ábyrgð útgerðar-
manns á fatnaði og öðrum hlutum, sem
skipverjar hafa með sér í skiprúm og
greiðsluskyldu útgerðarmanns á iðgjöld-
um til Slysatryggingar ríkisins. Umræð-
ur urðu nokkrar og stakk forseti siðan
upp á þvi, að umræðum loknum, að
málinu verði vísað til Slysavarnarnefnd-
ar. Var það samþykkt.
4. Sildarúlvegsmál. Frummælandi var
Stefán Jónasson. Eftir allmiklar umræð-
ur, sem snerust aðallega um það, að lýsa
ótrú sinni á Síldareinkasölu íslands, var