Ægir - 01.01.1932, Blaðsíða 41
ÆGIR
35
Norðurlands, Sérstaklega bendir Fjórð-
ungsþingið Fiskiþinginu á, að brýn
nauðsyn er til að veiðistöðvar Norð-
urlands fái veðurfregnir frá Grímsey
daglega«.
Tillagan samþ. með öllum gr. atkv.
18. Dragnótaveiði, 9. mál á dagskrá.
Frummælandi Haraldur Guðmundsson.
Urðu nokkrar umræður um málíð og
kom loks fram svo hljóðandi tillaga:
»Fjórðungsþingið mælir með aðbönn-
uð verði dragnótaveiði í landhelgi á
svæðinu frá Langanesi að Gjögrum
við Eyjafjörð, með stærri skipum en
15 smálesta og að framvegis verði þess
stranglega gætt, að veiði með hvers
konar hleranætur séu ekki liðnar inn-
an landhelgia.
Till. samþ. með öllum gr. atkv.
19. Fjárhagsnefnd lagði fram svo hljóð-
andi fjárhagsáætlun:
T e k j u r:
Tillag frá Fiskifélagi Islands kr. 1000.00
Samt. kr. 1000.00
G j ö 1 d:
1. Til upplýsingastarfsemi kr. 200.00
2. — væntanlogs fulltrúaf. — 500.00
3. óviss útgjöld .... 300.00
Samt. kr. 1000.00
20. Fiskimat. Frummælandi Jón Sig-
urðsson. Á fundinum mætti yfirfiski-
matsmaður Jóhannes Jónasson. Urðu um
málið töluverðar umræður og kom loks
fram svo hljóðandi tillaga:
1. »Fjórðungsþingið telur mjög nauð-
synlegt, að lögð sé meiri alúð við
meðferð saltfiskjar en hingað til hef-
ur átt sér stað, og skorar á yfir-
matsmenn og undirmatsmenn að
leiðbeina mönnum í því efni.
‘2. Fjórðungsþingið er einhuga um að
lækka beri kostnað við fiskverkun
og fiskimat og skorar á Fiskiþingið
að taka það atriði til ítarlegrar íhug-
unar ásamt 1. lið þessarar tillögu.
Tillagan samþykkt.
21. Önnur mál. Páll Halldórsson lagði
fram og mælti með svo hljóðandi til-
lögu:
»Fjórðungsþingið mælir með að Fiski-
félagsstjórnin láti halda vélfræðináms-
skeið á Raufarhöfn á yfirstandandi
vetri ef nægileg þátttaka fæst og önn-
ur skilyrði eru fyrir hendi.
Till. samþ. með öllum atkv.
22. Einar Sörensson hreyfði því, að
Fjórðungsþingið áréttaði að nýju, að
Fiskifélagssjóður styrkti byggingu báts til
öryggis við mannflutninga milli skips og
og lands á Húsavíkurhöfn.
Samþykkti þingið þetta.
23. Fnlltrúajundnr. í því samþykkt svo
hljóðandi tillaga.
»Með skírskotun til afgreiðslu ýmsra
mála á þessu Fjórðungsþingi, felur það
fjórðungsstjórninni að boða til almenns
fulltrúafundar fyrir verstöðvar fjórð-
ungsins, er haldinn verði á Akureyri
í des, eða jan. á yfirstandandi vetri«.
24. Reikningsskil. Þar sem gjaldkeri
fjórðungssambandsins gat elcki mætt á
þinginu og reikningar þvi ekki lagðir
fyrir þingið, felur þingið þeim
Stefáni Jónassyni,
Páli Halldórssyni og
Jóni Sigurðssyni
að yfirfara og úrskurða um reikninga
fjórðungssambandsins fyrir yfirstandandi
ár.
25. Þingið fól stjórninni að ákveða
ferðastyrk fulltrúa.
26. Ákveðið að halda næsta fjórðungs-
þing á Akureyri.