Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1932, Blaðsíða 14

Ægir - 01.01.1932, Blaðsíða 14
grundvöll fyrir útgerðinni, til þess að byggja ráðningarkjörin á. Auðvitað snú- ast störf fjórðungsþinganna um svo margt annað, og auk þess eru ekki deildir i öllum útgerðarplássum, en á þessum fulltrúafundum eiga sæti menn frá öll- um útgerðarplássum, án tillits til þess, hvort að þar eru starfandi deildir eða ekki. Þar að auki eru deildirnar skipað- ar íleiri mönnum en útgerðarmönnum og sjómönnum, í þeim eru t. d. allmarg- ir áhugameðlimir, sem gengið hal'a í deildirnar af áhuga fyrir málefninu og félagsskapnum, án þess að þessir menn, séu réttir aðilar, til þess að greiða at- kvæði um launakjör sjómanna eða hluta- skipti á bátum. En svo mikið er víst, að þessum full- trúafundi á Akureyri tókst allvel að leysa til bráðabirgða, þau vandkvæði, sem út- gerðin þar var komin í. Loðna og smásíld fékkst á Eyjafirði, strax í aprílmánuði, og var þá ágætis- afli um tima og fram eftir vori. Þó munu ekki beituvandræði hafa dregið neitt úr afla við Eyjafjörð til muna, þó síld hefði ekki komið þar snemma, því að frysti- húsin þar voru yfirleitt vel birg með beitu, en bæði austan og vestan Siglu- fjarðar, dró beituskortur töluvert úr afla. Annars er það einkennilegt, að Norður- land, sem framleiðir og selur mesía beitu- sild, er yfirleitt verstbirgt af öllum fjórð- ungunum, með beitu, fyrir sjálft sig, strax þegar sildveiði lýkur á haustin og á vorin, fáist ekki ný sild eða loðna. Menn búast þar svo fastlega við nýju síldinni snemma á vorin, að þeir byggja útgerðina á þvi, að hún komi á réttum tíma. Þetta er í sjálfu sér ekki svo óeðli- legt, með verstöðvarnar við Eyjafjörð, þvi þar kemur smásildin oft á vorin, en það er einkennilegra með þær veiðstöðv- ar fjórðungsins, sem fjær Eyjafirði liggja, byggja sjósókn sína á smásildinni, þvi þangað er hún ekki vön að koma. Fundargerð fulltrúafundar þess, sem um ræðir hér á undan, er birt i 3, tbl. Ægis 1931. Austfirðingafjórðungur. Þessi landshluti hefur orðið hörmu- lega út undan með aflabrögð á þessu ári, eins og oft áður, nú síðustu árin. Framan af árinu er veiðín aðallega stunduð frá Hornafirði, og færa bátarnir sig af norðurfjörðunum þangað, meðan að vertiðin stendur yfir. Aflinn á Horna- firði byggist aftur á þvi vanalega, að loðna fást þar til beitu, en hún er vön að ganga þar inn í ósinn, ef hún kemur á annað borð upp að suðaustur land- inu. í þetta sinn kom loðnan þangað mjög litið, eins og víðar að landinu, og varð því Hornafjarðarvertíðin mjög rýr. í þetta sinn gengu frá Hornafirði á vertiðinni, 25 bátar, og öfluðu frá þvl í miðjum marz til miðs maí, 2550 skpd. Sé þetta borið saman við verstöðvarnar hér sunnanlands á sama tíma, sést bezt, hve Austurlandið hefur orðið hörmulega útundan í þessu mikla aflaári. Þrátt fyrir það, þó viða sé þröngt fyr- ir dyrum hjá útgerðarmönnum hér á landi, nú um áramótin, þá er því þó ekki að neita, að sérstaklega lætur mað- ur sér þó detta í hug Austurlandið í því sambandi, og margar raddir og mismun- andi, hafa heyrst um, að eitthvað verði að gera, og sumar hafa komið fram sem beinar tillögur í þá átt, að hjálpa þess- um fjórðungi, en eins og við er að bú- ast, hafa flestar tillögur þessar enn þá ekki komist nema á pappírinn, enda sumar þeirra æði loftkenndar. Austfirðingar eru, frekar en aðrir lands- menn, háðir heimaafla báta sinna, og

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.