Ægir

Volume

Ægir - 01.01.1932, Page 47

Ægir - 01.01.1932, Page 47
ÆGIR H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS AÐALFUNDUR Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélag íslands verður haldinn í Kaupþingssalnum í húsi félagsins í Reykjavík, laugard. 25. júní 1932 og hefst kl. 1 e. h. DAGSKRÁ: 1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og fram- kvæmdum á liðnu starfsári, og frá starfstilhöguninni á yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar endurskoðaða reksturs- reikninga til 31. des. 1931 og efnahagsreikning með athugasemdum endurskoðenda, svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum. 2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu ársarðsins. 3. Kosning fjögra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra sem úr ganga samkvæmt félagslögunum. 4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og eins varaendurskoðanda. 5. Tillögur til breytinga á lögum félagsins. 6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að verða borin. Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dagana 23. og 24. júní næstkomandi. Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík. Reykjavík, 21. desember 1931. STJÓRNIN

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.