Ægir - 01.01.1932, Síða 31
ÆGIR
25
staðahók, Samþ. í e. hlj., — b. Tillaga
frá Kristmanni Tómassyni, svo hljóðandi:
»Fjórðungsþingið skorar á Fiskiþingtð að
beita sér fyrir þvi, að byggður verði inn-
siglingarviti á Krossvik á Akranesi sem
allra fyrst«. Samþ. í e. hlj. — c. Tillaga
frá Jóhanni Ingvasyni, svo hljóðandi:
»Fjórðungsþingið skorar á vitamálastjóra
að beita áhrifum sínum við þing og stjórn,
til þess að viti í Vogum í Vatnsleysu-
strandarhreppi verði tekinn upp í vita-
kerfi landsins og reistur hið allra bráð-
asta«. Samþ. í e. hlj.
12. Ljós og bförgunartœki ú brgggjur í
Keflavík. Framsögu hafði Jóhann Ingva-
son. Um mál þetta urðu allmiklar um-
ræður, en að þeim loknum var borin
upp svo hljóðandi tillaga: »Fjórðungs-
þingið mælir með því, að næsta Fiski-
þing ætli fé til þess að setja upp ljós á
bryggjur í Keflavik og til þess að fá
bjarghringi og línubyssu til afnota, ef
þörf krefur«. Samþ. í e. hlj.
Fundi frestað.
Laugardaginn 28. nóvbr. kl. 9,30 árd.,
var fundur settur á ný á sama stað og
var þá tekið fyrir:
13. Ráðstafanir vegna fjárhagsörðug-
leika. Framsm. var Jóhann Ingvason.
Lagði hann fram nefndarálil og gerði
grein fyrír því og bar fram svo hljóð-
andi tillögu í 3 liðum : »Fjórðungsþing-
Sunnlendingafjórðungs beinir þeirri á-
skorun til Fiskiþingsins, a. að það hlut-
ist til um það við Alþingi, að sett verði
lög, sem heimili bönkum og lánsstofn-
unum, þegar um knýjandi nauðsyn er
að ræða, og þar sem því verður við-
komið, að fresta afborgunum skulda um
eitt ár í senn, sem stofnað hefur verið
til vegna framleiðslu landsmanna. b. að
felldur sé niður verð- og vörutollur á
hráefni, er nota þarf til framleiðslu. c. að
komið verði á fót lánsstofnun fyrirsmá-
bátaútveginn, sem veiti hagkvæmari lán
til reksturs hans, en nú eru fáanleg«.
Samþ. i e. hlj.
14. Breyting á birtingu veðurfregna.
Framsm. Jóhann Ingvason gerði grein
fyrir áliti nefndarinnar og bar framsvo-
hljóðandi tillögu: »Fjórðungsþingið á-
lyktar að skora á Fiskiþingið, að beita
sér fyrir þvi við Alþingi, að veitt verði
að minnsta kosti helmingi meira fé, en
nú er ákveðið, fyrir birtingu veðurfregna.
Jafnframt leggur þingið áherzlu á, að
stormfregnir verði tilkynntar með sím-
skeyti. Samþ. í e. hlj.
15. Dragnótaveiðar í landhelgi. Framsm.
Valdimar Kristmundsson, gerði grein fyr-
ir áliti og tillögum nefndarinnar. Um
málið urðu nokkrar umræður ug tóku
þátt i þeim auk fulltrúanna, Kr. Bergs-
son forseti, Bjarni Sæmundsson dr. og
Árni Friðriksson fiskifræðingur, er báðir
töldu skaðlaust að veiða kola i landhelgi.
Tillaga nefndarinnar er svo hljóðandi:
»Fjórðungsþingið skorar á Fiskiþingið,
að hlutast til um það við Alþingi, að
breytt verði gildandi lögum um bann
gegn dragnótaveiði í landhelgi, á þann
hátt, að leyft verði að íiska með drag-
nót í landhelgi á tímabilinu 1. ágúst til
1. des. ár hvert. Ennfremur að allar inn-
anhéraðssamþykktir verði úr gildi felld-
ar«. Samþ. i e. hlj.
Fundarhlé.
Kl. 1,30 síðd., var fundur settur á ný
og þá tekið fyrir að ræða:
16. Hafskipabryggju i Keflavíkurhreppi.
Framsögumaður Jóhann Ingvason. Eftir
að framsögum. hafði reifað máliðoglýst
erfiðleikum Suðurnesjabúa vegna hafn-
leysis, bar hann fram svohljóðandi til-
lögu: »Fjórðungsþingið mælir sterklega
með því, a. að næsta Fiskiþing veiti með-