Skinfaxi - 01.02.2009, Blaðsíða 30
30 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Eftirtaldir aðilar
styðja starfsemi
Ungmennafélags Íslands:
Ísafjörður
Boltafélag Ísafjarðar, Vallarhús Torfnesi
Efnalaugin Albert ehf., Sindragötu 14
Fræðslumiðstöð Vestfjarða,
Suðurgötu 12
Bolungarvík
Fiskmarkaður Bolungarvíkur og
Suðureyrar ehf., Hafnargötu 12
Verkalýðs- og sjómannafélag
Bolungarvíkur, Hafnargötu 37
Súðavík
Súðavíkurhreppur, Grundarstræti 3
Víkurbúðin ehf., Grundarstræti 1–3
Flateyri
VÁ VEST, félag um vímuefnaforvarnir,
Tröð
Bíldudalur
G.S.G. vörubílaakstur – trésmíði ehf.,
Kríubakka 4
Staður
Bæjarhreppur, Hlaðhamri
Hólmavík
Kaupfélag Steingrímsfjarðar,
Höfðagötu 3
Hvammstangi
Húnaþing vestra, Hvammstangabraut 5
Blönduós
Húnavatnshreppur, Húnavöllum
Skagaströnd
Elfa ehf., Oddagötu 22
Kvenfélagið Hekla
Sauðárkrókur
Fisk - Seafood hf., Eyrarvegi 18
Hólaskóli, Háskólinn á Hólum,
Hólum í Hjaltadal
Kaupfélag Skagfirðinga, Ártorgi 1
K.Þ. lagnir ehf., Gilstúni 30
Tannlæknastofa Páls Ragnarssonar ehf.,
Sæmundargötu 31
Verkfræðistofan Stoð ehf, Aðalgötu 21
Varmahlíð
Álftagerðisbræður ehf., Álftagerði
Akureyri
Bautinn og Smiðjan, veitingasala,
Hafnarstræti 92
Blikkrás ehf., Óseyri 16
Eggjabúið Gerði ehf., Þórsmörk
Félagsbúið Hallgilsstöðum,
Hallgilsstöðum
Haukur og Bessi tannlæknar
Kjarnafæði hf., Fjölnisgötu 1b
Steypusögun Norðurlands ehf.,
Víðivöllum 22
Svalbarðsstrandarhreppur, Ráðhúsinu
Tannlæknastofa Árna Páls Halldórs-
sonar, Mýrarvegi
Tannlæknastofa Ragnheiðar Hansdóttur,
Kaupangi v/Mýrarveg
Verkmenntaskólinn á Akureyri,
Eyrarlandsholti
Þelamerkurskóli, Laugalandi
Grenivík
Stuðlaberg útgerð ehf, Ægissíðu 11
Héraðsþing HSH haldið á Lýsuhóli:
Snæfellingar geta verið
stoltir af árangri sínum
Héraðsþing Héraðssambands Snæfellsness-
og Hnappadalssýslu, HSH, var haldið að Lýsu-
hóli 25. febrúar sl. Í skýrslu formanns, Garðars
Svanssonar, kom fram að Snæfellingar geti
verið stoltir af árangri sínum á síðasta ári.
Bæði utan og innan vallar hafi Snæfellingar
verið öðrum fyrirmynd, en fyrirmyndarbikar
UMFÍ féll HSH í skaut í þriðja skipti í röð á
Unglingalandsmótinu í Þorlákshöfn á síð-
asta sumri. Garðar sagði ennfremur í skýrslu
sinni að Snæfellingar ættu innan sinna raða
íþróttafólk sem hefði skarað fram úr í leik
og keppni og þannig vakið athygli á þeim
krafti sem býr í Snæfellingum.
Þingstörf gengu vel og almenn bjartsýni
ríkti fyrir komandi starfsár. Um 35 fulltrúar
sátu héraðsþingið og m.a. flutti Sæmundur
Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFÍ, ávarp.
Sæmundur veitti síðan Kristjáni Þórðarsyni
í Ungmennafélagi Staðarsveitar starfsmerki
UMFÍ.
Frá héraðsþingi HSH.
Brynjar Gauti Guðjónsson,
íþróttamaður HSH 2008.
Mynd til vinstri: Sæmundur
Runólfsson, framkvæmdastjóri
UMFÍ, sæmir Kristján Þórðarson
starfsmerki UMFÍ.
92. ársþing Ungmennasambands
Austur-Húnvetninga, USAH, var haldið
22. mars sl. á Blönduósi. Þingið sóttu
góðir gestir auk félaga úr aðildar-
félögum sambandsins. Ómar Bragi
Stefánsson var fulltrúi UMFÍ á þinginu.
Ein breyting varð á stjórn sambands-
ins, en Hafdís Vilhjálmsdóttir gekk úr
stjórn og í hennar stað kom inn Sigrún
Líndal Þrastardóttir.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa var
útnefndur íþróttamaður ársins hjá
USAH. Fyrir valinu varð Guðmann
Jónasson í Skotfélaginu Markviss. Guð-
mann stóð sig með miklum ágætum
á síðastliðnu ári og hefur verið valinn í
landsliðið í leirdúfuskotfimi.
Stjórn sambandsins var falið að skipa
nefnd til að endurskoða útreikning og
greiðslu lottótekna. Einnig var sam-
þykkt að þær skyldu greiddar út að
nýju en það hefur ekki verið gert í
nokkur ár heldur hafa þær runnið
óskiptar til sambandsins.
Aðalbjörg Valdimarsdóttir, formaður
USAH, sagði að síðasta starfsár hefði
gengið vel og skilað sambandinu um
þremur milljónum í hagnað. „Við feng-
92. ársþing USAH haldið á Blönduósi:
Bjart fram undan í sumar
um góða styrki en sveitarfélögin hér
í kring komu inn með meiri styrki en
áður. Þá hefur starfsemin hjá aðildar-
félögunum verið góð og má í því sam-
bandi nefna hestaíþróttir og knatt-
spyrnu. Við lítum björtum augum til
sumarsins,” sagði Aðalbjörg Valdimars-
dóttir, formaður USAH.
Guðmann Jónasson, íþróttamaður ársins hjá USAH,
ásamt Aðalbjörgu Valdimarsdóttur, formanni USAH.