Skinfaxi - 01.02.2009, Blaðsíða 9
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 9
á Akureyri
Tímamótalandsmót
Sem fyrr segir er í ár liðin öld frá því að
fyrsta Landsmót UMFÍ var haldið
– einmitt á Akureyri. Mótið í sumar verð-
ur það fjórða á Akureyri – áður voru
Landsmót hér árin 1909, 1955 og 1981.
Undirbúningur og framkvæmd móts-
ins er og hefur að stærstum hluta verið í
höndum tólf manna landsmótsnefndar.
Í henni eru fulltrúar Ungmennafélags
Íslands, Ungmennasambands Eyjafjarð-
ar, Ungmennafélags Akureyrar og Akur-
eyrarbæjar.
Keppnisgreinar á
Landsmótinu:
Frjálsar íþróttir, golf, sund, badminton,
borðtennis, blak, brids, dans, glíma, hand-
knattleikur, hestaíþróttir, júdó, knatt-
spyrna, körfuknattleikur, siglingar, skot-
fimi, skák, fimleikar og íþróttir fatlaðra
(sund, frjálsar íþróttir, boccia).
Starfsíþróttir:
Dráttarvélaakstur, gróðursetning, hesta-
dómar, jurtagreining, lagt á borð, pönnu-
kökubakstur, stafsetning og starfshlaup.
Kynningargreinar:
Fjallabrun (hjólreiðar), sjósund, mara-
þon, taekwondo og motocross.
Auk þess verður boðið upp á íþróttir
fyrir eldri borgara (boccia, pútt, ringó,
almenningsganga, dans/leikfimi).
Maraþon verður ein af kynningar-
greinum á Landsmótinu. Þetta verður
gert með þeim hætti að árlegt Akureyr-
arhlaup UFA verður af þessu tilefni flutt
til og það fellt inn í dagskrá Landsmóts-
ins – hlaupið verður laugardaginn 11. júlí.
Til þessa hefur hálft maraþon verið
lengsta vegalengdin í Akureyrarhlaup-
inu, en af þessu tilefni verður skrefið
stigið til fulls og boðið upp á heilt mara-
þon, hálft maraþon, tíu kílómetra hlaup
og skemmtiskokk. Heilt maraþon hefur
aldrei áður verið hlaupið á Landsmóti
UMFÍ og aldrei áður hefur maraþon
verið hlaupið á Akureyri.
Nú þegar er búið að tímasetja og
staðsetja bróðurpart keppnisgreina á
Landsmótinu. Upplýsingar um þetta er
að finna á heimasíðu mótsins. Keppni
hefst á Landsmótinu fimmtudaginn 9.
júlí og því verður slitið um hádegi sunnu-
daginn 12. júlí.
Iðandi mannlíf
Landsmót UMFÍ mun sannarlega setja
mark sitt á Akureyri mótsdagana og
þeir, sem komið hafa að undirbúningn-
um, finna að það er metnaður í bænum
til þess að staðið verði að mótshaldinu
af myndarskap. Í gegnum tíðina hefur
safnast upp mikil reynsla við skipulagn-
ingu og framkvæmd fjölmennra við-
burða. Nægir þar að nefna bæjarhátíð
um verslunarmannahelgina, N1-mót
KA í knattspyrnu, sem er fjölmennasta
árlega knattspyrnumót landsins, Polla-
mót Þórs í knattspyrnu og Andrésar
andar-leikana á skíðum, svo að nokkur
dæmi séu tekin.
Allur bærinn verður iðandi af mann-
lífi. Íþróttamannvirki bæjarins verða
undirlögð á meðan á mótinu stendur og
á ýmsan annan hátt mun það ekki fara
fram hjá nokkrum manni að 100 ára
afmælismót Landsmóta UMFÍ fer fram
í bænum. Til dæmis er stefnt að því að
bjóða öllum landsmönnum til afmælis-
veislu laugardaginn 11. júlí og hundrað
ára saga Landsmótanna mun birtast
bæjarbúum og gestum í mörgum mynd-
um á meðan á mótinu stendur.
Ýmsar uppákomur verða í bænum
sem munu vekja athygli (má t.d. nefna
boðhlaup í kirkjutröppunum víðfrægu)
og einnig verða margs konar menningar-
viðburðir í boði á Akureyri sem verða
gerð nánari skil síðar.
Í samvinnu við Háskólann á Akureyri
verður hvers konar heilsueflingu gerð
skil og nefna má að afreksþjálfarinn
Vésteinn Hafsteinsson, sem eins og kunn-
ugt er þjálfar Eistlendinginn Gerd
Kantner, núverandi Ólympíumeistara í
kringlukasti, verður með fyrirlestur að