Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2009, Blaðsíða 24

Skinfaxi - 01.02.2009, Blaðsíða 24
24 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Skólahreysti MS er spennandi hreystikeppni sem allir grunnskólar landsins geta tekið þátt í. Þátttaka og áhugi á Skólahreysti MS hefur vaxið gríðarlega frá því að fyrsta keppnin var haldin á vordögum 2005. Þá var sex grunnskólum boð- ið að keppa í hreystikeppni í íþrótta- húsinu Varmá í Mosfellsbæ og vann Hjallaskóli þá keppni. Þetta mæltist vel fyrir og sýndu nemendur skól- anna þessu framtaki mikinn áhuga. Ári síðar var öllum skólum á Stór- Reykjavíkursvæðinu boðið til leiks og mættu þá 44 skólar til keppni. Í kjölfarið spurðust margir skólar úti á landi fyrir um það hvort þeir mættu ekki keppa líka. Því var ákveðið að bjóða öllum grunnskólum á Íslandi, sem eru með 9. og 10. bekk, að taka þátt. Árið 2008 tóku 106 skólar þátt og var það metþátttaka. Nú í ár er þátt- takan enn betri en 117 skólar eru Skólahreysti MS skráðir til keppni. Keppnin nú í ár hefur farið mjög vel af stað. Nú þegar hafa tvö Íslandsmet verið slegin, í dýfum stráka og armbeygj- um stelpna. Úrslitakeppni Skóla- hreysti MS 2009 verður í Laugar- dalshöllinni 30. apríl næstkomandi. Þar munu tólf skólar alls staðar af landinu etja kappi hver við annan. Hagaskóli varð sigurvegari í keppn- inni í fyrra og verður spennandi að sjá hver beri sigur úr býtum í ár. Sú nýbreytni er í keppninni að tvö stigahæstu liðin, sem ekki komust upp úr sínum riðli, komast áfram í úrslitin. Keppendur undirbúa sig vel undir keppnina og mjög algengt er að keppendur bæti sig milli ára. Áhorfendur hafa verið duglegir að koma og styðja keppnisliðin sín og húsfyllir hefur verið á hverjum stað. Stórkostleg stemning, búningar, skilti og trommur stuðningsmanna- liðanna, er nú stór þáttur af Skóla- hreysti MS. Mjólkursamsalan hefur frá upp- hafi verið aðalstyrktaraðili keppn- innar. Að sögn Guðnýjar Steins- dóttur markaðsstjóra hefur fyrirtæk- ið um árabil stutt íþróttakennara og verið öflugur tengiliður skól- anna og átaksverkefna tengdum heilsu barna og unglinga. Að sögn hennar er Skólahreysti MS stærsta einstaka verkefnið sem Mjólkur- samsalan hefur ráðist í á þessum vettvangi og hefur það vakið mikla athygli meðal nemenda grunn- skólanna og almennings. Markmið keppninnar er að efla hreyfingu barna og unglinga og gera gömlu, góðu æfingarnar eftir- sóknarverðar á ný. Ákveðið var í upphafi að gera allar keppnirnar glæsilegar. Starfsfólk, tækjakostur og aðbúnaður er mjög vandaður og er það gert svo krakkarnir vilji

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.