Skinfaxi - 01.02.2009, Page 24
24 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Skólahreysti MS er spennandi
hreystikeppni sem allir grunnskólar
landsins geta tekið þátt í. Þátttaka
og áhugi á Skólahreysti MS hefur
vaxið gríðarlega frá því að fyrsta
keppnin var haldin á vordögum
2005. Þá var sex grunnskólum boð-
ið að keppa í hreystikeppni í íþrótta-
húsinu Varmá í Mosfellsbæ og vann
Hjallaskóli þá keppni. Þetta mæltist
vel fyrir og sýndu nemendur skól-
anna þessu framtaki mikinn áhuga.
Ári síðar var öllum skólum á Stór-
Reykjavíkursvæðinu boðið til leiks
og mættu þá 44 skólar til keppni. Í
kjölfarið spurðust margir skólar úti
á landi fyrir um það hvort þeir mættu
ekki keppa líka. Því var ákveðið að
bjóða öllum grunnskólum á Íslandi,
sem eru með 9. og 10. bekk, að
taka þátt.
Árið 2008 tóku 106 skólar þátt og
var það metþátttaka. Nú í ár er þátt-
takan enn betri en 117 skólar eru
Skólahreysti MS
skráðir til keppni. Keppnin nú í ár
hefur farið mjög vel af stað. Nú
þegar hafa tvö Íslandsmet verið
slegin, í dýfum stráka og armbeygj-
um stelpna. Úrslitakeppni Skóla-
hreysti MS 2009 verður í Laugar-
dalshöllinni 30. apríl næstkomandi.
Þar munu tólf skólar alls staðar af
landinu etja kappi hver við annan.
Hagaskóli varð sigurvegari í keppn-
inni í fyrra og verður spennandi að
sjá hver beri sigur úr býtum í ár. Sú
nýbreytni er í keppninni að tvö
stigahæstu liðin, sem ekki komust
upp úr sínum riðli, komast áfram í
úrslitin.
Keppendur undirbúa sig vel undir
keppnina og mjög algengt er að
keppendur bæti sig milli ára.
Áhorfendur hafa verið duglegir að
koma og styðja keppnisliðin sín og
húsfyllir hefur verið á hverjum stað.
Stórkostleg stemning, búningar,
skilti og trommur stuðningsmanna-
liðanna, er nú stór þáttur af Skóla-
hreysti MS.
Mjólkursamsalan hefur frá upp-
hafi verið aðalstyrktaraðili keppn-
innar. Að sögn Guðnýjar Steins-
dóttur markaðsstjóra hefur fyrirtæk-
ið um árabil stutt íþróttakennara
og verið öflugur tengiliður skól-
anna og átaksverkefna tengdum
heilsu barna og unglinga. Að sögn
hennar er Skólahreysti MS stærsta
einstaka verkefnið sem Mjólkur-
samsalan hefur ráðist í á þessum
vettvangi og hefur það vakið mikla
athygli meðal nemenda grunn-
skólanna og almennings.
Markmið keppninnar er að efla
hreyfingu barna og unglinga og
gera gömlu, góðu æfingarnar eftir-
sóknarverðar á ný. Ákveðið var í
upphafi að gera allar keppnirnar
glæsilegar. Starfsfólk, tækjakostur
og aðbúnaður er mjög vandaður
og er það gert svo krakkarnir vilji