Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1940, Síða 36

Ægir - 01.01.1940, Síða 36
30 Æ G I R Átta héldu þó lítið eitt áfram fram i júní og hætti sá seinasti um miðjan mánuðinn; — Alls fóru togararnir 162 veiðiferðir, sem er samanlagt 2139 út- haldsdagar, og er það 5 veiðiferðum og 104 úthaldsdögum fleira en fyrra ár. Eftirfarandi tafla sýnir veiðiferðir og útlialdsdaga togara á saltfiskveiðum undanfarin 7 ár: 1939 ........ 162 2 139 1938 ........ 157 2 035 1937 ........ 128 1 653 1936 ........ 154 1 812 1935 ........ 309 3 085 1934 ........ 340 3 362 1933 ........ 361 3 421 Þorskveiðar voru lengst stundaðar af togara á árinu í 133 daga og er það 11 dögum lengur en siðastl. ár. Meðal- úthaldstími togara á saltfiskveiðum hefir orðið sem næst 65 dagar að þessu sinni, en veiðiferðir að meðaltali 5. Lifrarfengur togaranna á saltfiskver- tíðinni varð alls 13 393 föt, og er það 1943 fötum minna en fyrra ár. Mesta lifrarmagn á livern úthaldsdag hefir að þessu sinni orðið sem næst 6 % fat, en siðastl. ár um 7 % fat. Meðalafli, miðað við hvern úthaldsdag, var lítið eitt meiri en tvö síðastliðin ár, eða 1939 ....... 4.3 smál. 1938 ....... 4.1 — 1937 ....... 4.2 — 1936 ....... 4.4 — 1935 ....... 5.8 — 1934 ....... 6.1 — 1933 ....... 6.6 — Saltfiskveiðar stunduðu 32 togarar, eða 1 færra en árið áður. Síldveiði stunduðu 25 togarar, eða jafnmargir og fyrra ár. Auk þess voru 2 togarar á karfaveiðum allt sumarið og 1 nokkurn tíma. Tveir togarar voru við ísfiskveiðar um sumarið og 8 togarar voru við flutn- ing á issíld nokkurn tíma framan af sumri, eða alls 164 daga. Samanlagður úthaldstími allra togaranna á árinu var 8 766 dagar, og er það 601 degi færra en fyrra ár. Meðalúthaldstími hvers togara á árinu er þvi 249 dagar, ef togarinn „Hannes ráðherra“ er ekki talinn með, sem vitanlega er ekki hægt, því að hann strandaði 14. febr. Meðalúthaldstími hvers togara er því 4 dögum skemur en árið áður, ef sá timi er talinn með, sem togararnir voru við íssildarflutningana, en annars 8 dögum skemur. r Isfísksalan. Togarar seldu isfisk á erl. markaði alla mánuði ársins, nema september. Eins og kunnugt er, hefir undanfarin ár verið heimilt að selja til Bretlands 12 700 smál. af frystum og ísuðum fiski á ári. Á þessu urðu þær breytingar á árinu, að skömmu eftir að striðið hófst var salan til Bretlands gefin frjáls, en inn- flutningstollurinn, sem er 10 %, stendur enn þá óbreyttur. Samanburð á ísfisksölunni í ár og 1938 er mjög erfitt að gera, vegna þess að þær sölur, sem gerðar voru 3 sein- ustu mánuði ársins, fóru fram undir gerbreyttum aðstæðum. — Fyrstu 8 mánuði ársins voru farnar 86 ferðir og er það 21 ferð fleira en á sama tíma síðastl. ár. Að þessu sinni voru farnar 2 ferðir í marz, en engin árið áður, en i júní var aðeins farin 1 ferð nú og er það 8 ferðum færra en fyrra ár. Meðal- sala í ferð 8 fyrstu mánuðina hefir orðið 1193 £, en siðastl. ár var meðalsalan á þessum tíma 1160 £. Til Þýzkalands voru alls farnar 19 ferðir á árinu og er það 36 ferðum færra en fyrra ár. í ágúst-mánuði voru farnar 13 ferðir og selt að meðaltali fyrir

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.