Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1940, Síða 38

Ægir - 01.01.1940, Síða 38
32 Æ G I R farnar 59 ferðir og varð meðalsala þá í ferð 1.152 £. Til Englands hafa alls verið farnar á árinu 141 ferð og er með- alsalan í ferð 2 034 £. Síðastl. ár voru farnar 118 ferðir til Englands. Alls hafa togararnir farið 160 ferðir á árinu og' self fyrir 346 686 £, eða 2 167 £ í ferð. Eftir að stríðið skall á fóru þeir alls 74 ferðir og seldu fyrir 3 294 £ í hverri ferð að meðaitali. Fiestar ferðir fóru togar- arnir í febrúar, eða 40, en engar í sept. en 20 árið áður. Allir togararnir voru við ísfiskveiðar eða flutninga á ísfiski á árinu og varð samanlagður úthaldstími þeirra 4 578 dagar og er það 488 dögum skemur en fyrra ár. Stytting úthaldstímans stafar af því, að ekki var unnt að koma því við að sigla i september. Lifrarfengur ísfisk- togaranna varð 7 354 föt. Sá togari sem lengst var við þessar veiðar á árinu var i 240 daga. Hæsta meðalsala togara i ferð var 3 789 £. Þrjá seinustu mánuði ársins kevptu togararnir mjög mikið af bátafiski, eða 5 018 smál. fyrir 794 þús. kr. Greiddu þeir 17 aura fyrir pr. kg af ýsu, 15 aura fyrir þorsk og 13 aura fvrir sprak. En flatfiskur var keyptur sama verði og hraðfrvstihúsin greiddu fyrir hann. Hraðfrystihús og dragnótaveiði. Almennt byrjuðu bátar ekki dragnóta- veiði fvrr en landhelgin var opnuð, eða 16. mai. Eins og undanfarin ár voru reyndar nokkrir hátar byrjaðir áður, en mjög fáir. Fjæst framan af aflaðist heldur vel víðasl livar, en dróg svo úr því, og mátti heita rýr afli um mitt sumarið og er j)að svipuð saga og und- anfarin sumur. Síðari hluta sumars og um haustið var aftur á móti víðast hvar góð dragnótaveiði og sum staðar ágæt. Upp úr 20. júlí liættu fjöldamargir bátar dragnótaveiðum og fóru norður til reknetjaveiða. Munu miklu fleiri hát- ar hafa „skipt yfir“ að þessu sinni en nokkru sinni áður, og stafaði það fyrst og fremst af því, að dragnótaafli var mjög óverulegur og i öðru lagi vegna þess að saltsíldarverð hækkaði talsverl. Ekki er vitað með vissu hvað margir hátar stunduðu dragnótaveiðar á árinu. en þeir munu hafa verið nokkru færri en siðastl. ár, eða í kring um 165. Engar fullnaðarskýrslur liggja fyrir um drag- nótaveiðiaflann, en þó svo nákvæmar, að fvllilega er hægt að glöggva sig á hvernig hlutfallið hefir verið milli hinna ein- stöku fisktegunda í aflanum og stærðar- hlutföll hverrar tegundar. Að þessu sinni hefir skarkolinn gert um 38,41 % af öllum dragnótaaflanum, en 61.43 % af heildarverðmæti aflans. Eftir stærð skiptist hundraðstala skar- kolans þannig: Skarkoli yfir 500 gr. 21.77 %, frá 375—500 gr. 10.26 % og 250 —375 gr. 6.38 %. Síðastliðið ár gerði skarkolinn 43 % af heildaraflanum. Þykkvalúran gerði 12.74 % af heildar- aflanum, en 17 % fjæra ár. Þykkvalúran skiptist þannig eftir stærð: Þykkvalúra vfir 500 gr 6.63 %, 375—500 gr 3.08 % og 250—375 gr 3.03 %. Verðmæti þykkva- lúrunnar gerir 17.19 % af lieildarverð- mætinu. - Magn lúðunnar miðað við allan dragnótaaflann varð 2.73 %, en að verðmæti til 4.18 %. Árið áður varlúðan 3.5 % af heildaraflanum. Eftir stærð skiptist lúðuaflinn þannig: Lúða 10 kg og vfir 0.35 % og 0.5—10 kg 2.38 %. — Aflamagn þessara þriggja fyrrgi'eindra fisktegunda gerir 53.88 % af heildarafl- anum, en 82.80 % af heildarverðmætinu. Arið áður var magn þeirra 63.5 %, en verðmætið 84 %. Þá gerðu cftirtaldar fisktegundir þess-

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.