Ægir - 01.01.1940, Page 44
38
Æ G I R
Slysfarir og skiptapar.
Slysfarir voru með alira minnsta móti
þetta ár. Alls drukknuðu liér við land á
árinu 25 menn og voru þeir allir inn-
lendir. Þar af voru 13, sem drukknuðu i
ám eða vötnum, eða féllu út af bryggj-
um. Tólf menn hafa þvi drukknað af
skipum, og er það 18 færra en árið áður.
Tveir vélbátar undir 12 lestum fórust
með allri áhöfn. Einn togari strandaði og
gereyðilagðist. Eitt vélskip, stærra en 12
lestir, hrann á hafi úti og annað skip,
einnig stærra en 12 lestir, strandaði og
hrotnaði i spón.
Við hafnarg'erðir og
lendingabætur
var unnið á árinu sem hér greinir.
Stykkishólmur. Undirbúningur var
hafinn að endurbyggingu landgangs
bryggjunnar fram í svonefnt Stykki.
Endastöpull landgangsins fram í Stykk-
inu var steyptur upp að nýju og stækk-
aður, og auk þess var gert við 5 stöpla
ásamt minni háttar undirhúningsvið-
gerðum. Kostnaður um 22 þús. kr.
Salthólmaúík. Þar var gerð 40 m. löng
bátabryg'gja úr steinsteypu. Kostnaður
8 773 kr.
Hvallátrar á Rauðasandi. Unnið var
að því að dýpka og hreinsa landgöng-
una i framlialdi af þvi, sem unnið var
1938. Kostnaður tæpar 2 000 kr.
Flateyri. Þar var eingöngu unnið að
vörnum gegn ágangi sjávar, en ekki unn-
ið að varnargarðinum framanvert á eyr-
inni eins og undanfarin ár. Kostnaður
um 5 450 kr.
Súgandafjörður. Unnið var að fram-
lengingu hafnargarðsins. Af honum hafa
nú verið undirlagðir 70 m og eru þar af
fullgerðir 54 m. Garðurinn nær nú rösk-
lega fram á 3 m dýpi um stórstraums-
fjöru. 1 sumar var unnið fyrir um 37
þús. kr.
Bolungarvík. Þar urðu allmiklar
skemmdir á brimbrjótnum síðastl. vet-
ur. 1 sumar var unnið að því að gera við
þær. Ivostnaður um 25 þús. kr.
Hvammstangi. Þar var gerð 55 m löng
bátabryggja ú steinsteypu. Nær hún fram
á 0.5 m dýpi um lægstu fjöru. Fyrir
sunnan bryggjuna var gert uppsátur
fyrir uppskipunarbáta og vélbáta. Kostn-
aður um 37 þús. kr.
Blönduós. Haldið var áfram að byggja
upp að nýju hina gömlu bátabryggju fyr-
ir norðan ósinn. Kostnaður um 21 500 kr.
Skagaströnd. Lokið var við að steypa
jTir ker það, sem sett var niður í enda
hafnargarðsins sumarið áður og frá
hafnargarðinum var gengið að fullu.
Kostnaður 9 100 kr.
Sauðái'krókur. Þar var lokið við hafn-
argarðinn. Þá var og lögð 2 400 m löng
vatnsveita til hafnarinnar og hyggður
bryggjupallur til sildarsöltunar um 1100
m2 að stærð. Unnið var fyrir á árinu
um 105 þús. kr.
Siglufjörður. Unnið var að liafnar-
gerðinni og er það gert i ákvæðisvinnu.
Er samningsuppliæðin 640 þús. kr. Á
þessu ári var unnið fyrir rúm 110 þús.
kr. Úr rikissjóði er búið að verja til
þessarar hafnargerðar um 173 þús. kr.
Hafnargerðinni á að vera lokið 15. júní
1940, samkv. samningi við verktaka.
Ólafsfjörður. Vestan við bátabryggj-
una var gerð 55 m löng og 25 m breið
uppfylling fyrir síldarsöltun og auk þess
var bátabryggjan breikkuð og endur-
bætt. Kostnaður alls um 18 þús. kr.
Dalvík. Þar var byrjað á hafnargarði.
Lokið var við 40 m garðsins í fullri hæð
og steypt ofan á. Keypt var efni í 150 m
langa flutningsbryggju og auk þess lögð