Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1949, Blaðsíða 5

Ægir - 01.06.1949, Blaðsíða 5
Æ G I R 91 Lifrarsamlag Vestmannaeyja. Þess var fyrr getið, að samtök útvegs- manna í Vestmannaeyjum eiga nálega öll upptök sín í úlvegsbændafélagi eyjamanna. Þar hefur hugmyndunum fyrst skotið upp eða þar hefur að minnsta kosli verið fyrst um þær rætt og lögð á ráð um það, hvernig þeim yrði komið í framkvæmd. Þannig var þessu háttað um I.ifrarsamlag Vesl- mannaeyja, en það er elzt slikra samlaga hérlendis. Á árinu 1932 var fvrst um það rætt í útvegsbændafélaginu, að útvegsmenn bindust samtökum um að hagnýta lifrina í félagi, en frá stofnun þess var endanlega gengið 7. desember það ár. Allir útvegs- menn gerðust þegar aðilar að samlaginu og hafa alla tíð verið mjög samtaka um að efla gengi þess. Áður en samlagið var stofnað, hafði lifur að vísu vé'i-ið nýtt. en hana keyptu þá einstaklingar, sem starf- ræktu smábræðslur. Vor þær að minnsta kosti fimm um skeið, og var þeim komið l'yrir í skúrum víðs vegar í nánd við höfn- ina. Voru þær illa búnar að tækjuin, svo að úr lifrinni fékkst ekki það lýsi, sem að öðrum kosti hefði mátt fá. Af þessum og l'leiri orsökum fengu útvegsmenn minna fyrir lifrina en mátt hefði verða, ef hún hefði verið hagnýtt á hagkvæmari máta. Var þetta aðalástæðan til þess, að útvegs- bændafélagið gerðist frumkvöðull að því, að útvegsmenn hagnýttu þetta hráefni sameiginlega og á eigin kostnað. Um mark- mið samlagsins segir svo í 1. gr. laganna: „Lifrarsamlag Vestmannaeyja er félag með takmarkaðri ábyrgð samlagsmanna, el'tir þátttöku þeirra, svo sem síðar segir. Hefur það að markmiði að vinna að bættri vinnslu lýsis og mjöls úr lifur þeirri, sem tekin er til meðferðar á vinnslustöð Jiess. lagi Vestmannaeyja, Nctjagerðinni og V innslnstöðinni. Jóhann P. Jósefsson, formciöur Lifrarsamlagsins frá upphafi. Iiyggst samlagið að koma upp i Jiessu skyni lifrarbræðslustöð með nýtízku áhöldum. I\Ieð samþvkkt á samlagsfundi má færa út verksvið Jiess.“ í 2. gr. segir svo um það, hverjir geti orð- ið aðilar að samlaginu. „Félagsmenn geta orðið: Eigendur og út- gerðarmenn mótorbáta og trillubáta í Vestmannaevjum og þeir aðrir innanbæjar- menn, sem hafa yfir að ráða lifur til vinnslu hjá samlaginu, minnst 5000 kg.“ Samlagið hóf slarfsemi sína með því að kaupa hús, er beinamjölsverksmiðjan Hekla hafði átt, en Jiað stóð og' stendur rétt upp al' höfninni, á svo nefndum Flötum. Húsa- kynnum þessuni þurfti að breyta mikið, og síðan hefur verið aukið við þau. Samlagið lét fyrst nýta lifur á vertíðinni 1933 og tók L. K.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.