Ægir - 01.06.1949, Síða 9
Æ G I R
95
tekin til starfa 3. nóv. 1936. Fékk félagið
inni með vélar sínar og starfrækslu í svo-
nefndri Austurbúð, en þar hafði Brydes-
verzlun áður verið til húsa.
Fyrstu árin voru eingöngu hnýtt þorska-
nel og notuð í þau hampgarn frá Ítalíu.
Var unnið i tveimur vöktum, nótt og dag,
en þrátt fyrir það gat netjagerðin ekki
fullnægt þörfum Eyjamanna með þeim
vélakosti, sem hún réð yfir, en sá hins
vegar um útvegun á því, sem vantaði á.
I’að varð því að ráði árið 1938 að kaupa
þriðju vélina, en hún var mun stærri en
þær vé'.ar, sem keyptar voru frá Þvzka-
landi. Þessi vél var heldur ekki ný, því að
hún hafði verið notuð nokkur ár á Ála-
fossi, og var Sigurjón Pétursson eigandi
hennar. Með þessum vélakosti gat netja-
gerðin séð útveg Eyjamanna fvrir nægum
])orskanetjum og mikið til þorskanetjaút-
veginum annars staðar á landinu. Kom
þetta sér vel á styrjaldarárunum, þegar
allsendis reyndist ógjörningur að fá
þorskanet erlendis frá. Á síðastl. ári réðist
Netjagerðin í að kaupa nýja vél frá Bret-
landi og er hún mun stærri en liinar, sem
fyrir voru. Kostaði hún um 100 þús. krónur.
Eftir að styrjöldin skall á og ekki reynd-
ist unnt að fá hampgarn frá Ítalíu, en nota
varð bómullargarn frá Bandarikjunum
þess i stað, fór Netjagerðin að hnýta bálka
í nætur. Var hægt að nota sömu vélarnar
lil ]>ess og þorskanetjaframleiðslunnar,
því að þær er hægt að stilla á margvíslegar
möskvastærðir. í tveimur vélanna er hægt
að hnýta 7 net í senn í hvorri, 9 net i
þeirri þriðju og 11 net í þeirri fjórðu, og
er þá miðað við 26 möskvanet.
Nú er starfinu hagað þannig í Netja-
gerðinni, að ein vakt vinnur allt árið um
kring og eftirvinnu á veturna. í verksmiðj-
unni vinna 16 stúlkur auk verkstjóra. Frá
því Netjagerðin tók til starfa og fram til
siðustu áramóta hafði hún framleitt 90
l'ús. þorskanet og bálka í nætur.
Undanfarin ár hefur Netjagerðin starf-
rækt öngultaumagerð, er hefur megnað
að sjá útvegi Eyjamanna fyrir nægum
Gísli Gislcison fijrsli framUvœmdarstjóri Neljagerð-
arinnar og Sigurðnr Olason núverandi framkvœmdar-
stjóri liennar.
laumum. Hefur hún framleitt um 12 millj.
öngultauma frá byrjun.
Eftir að starfræksla Netjagerðarinnar
jókst og vélum fjölgaði varð húsnæði það,
sem hún fékk til umráða í upphafi of lítið, -
og réðst liún þá i að láta reisa myndarlegt
verksmiðjuhús við Heiðaveg. Hús þetta er
25 m á leng'd og' 15 m breitt, tvær hæðir
og kjallari undir nokkrum hluta þess.
Vinnusalur, hjartur og rúmgóður, og her-
bergi fyrir kaffidrykkju og hreinlætistæki
eru á neðri hæð, en á efri hæð skrif-
stofur og geymslur. Svo mikið rými er í
vinnusal, að hæta má þar við tveimur vél-
um. í þetta nýja hús flutti Netjagerðin
haustið 1947.
Fyrstu stjórn Netjagerðar Vestmanna-