Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.06.1949, Qupperneq 33

Ægir - 01.06.1949, Qupperneq 33
Æ G I R 119 Hjallasandur. Þaðan reru 8 bátar mestan hluta ver- tíðarinnar, og er það sania bátatala og árið áður. Bátar þessir eru allir litlir og eru að- eins þrír þeirra þiljaðir. Sá stœrsti þeirra er 16 rúml. og er 9 rúml. stærri en hinir þiljubátarnir. Hafnarskilyrði valda því, að bátar eru svo litlir í þessari verstöð, en ef aflamagn stærsta bátsins er borið saman við afla hinna, sést glögglega, hversu nýta mætti fiskimiðin á þessum slóðum, ef hafn- arskilyrði væru fyrir stærri báta. Fjórir bátar byrjuðu róðra síðla í janúar, en vertíð lauk almennt um 20. maí. Veðrátta var yfirleitt erfið til sjósóknar, en þó langverst í aprílmánuði. Að þessu sinni voru mest farnir 7 róðrar í þeim mán- uði, en 14 í fyrra. Mest voru farnir 52 róðr- ar yfir vertíðina og er það 4 róðrum fleira en á vertíðinni 1948. Afli var óvenju tregur, og kom aldrei neitt fiskhlaup siðari hluta marzmánaðar, eins og jafnan hefur átt sér stað undan- farnar vertiðir. Þrátt fyrir það fékkst þó mest.ur afli í þeim mánuði, enda voru þá beztar gæftir. Mestan afla í róðri fékk v/b Baldur i marz, um 6 smál. Sá bátur var einnig aflahæstur yfir vertíðina, fékk 244 smál. af fiski og 10 þús. I af lifur í 52 róðrum, eða um 4700 kg að meðaltali í fjöldi, heildarafli fisks og lifrar og meðal- afli á bát verið sem hér segir: Meðalafli Ar Báta- Heildarafli Heildarafli á bát fjöldi fiskur kg lifur I smál. 1945 24 10 467 789 658 236 436 1946 21 10 190 508 619 909 485 1947 22 11 262 432 718 625 551 1948 19 5 662 785 375 152 2961) 1949 18 6 680 670 452 610 371 Heimildarmaöur: Sigurður Björnsson, fiskimats- maður á Akranesi. I'essi vertið er ekki sambærileg við liinar, sök- um ])ess að helftin af hátunum byrjaði ckki porsk- veiðar fyrr cn um og eftir miðja vertið. róðri. Árið áður fékk aflahæsti báturinn 101 smál. Skýrslan um aflafenginn og róðrafjöldann á Sandi sýnir, að Baldur hefur fullkomlega aflað á við alla trillu- bátana fimm að tölu. V/b Baldur er eign Friðþjófs Guðmundssonar í Rifi og er hann formaður á honum. Hefur Friðþjófur stjórnað báti úr þessari veiðistöð í mörg ár og þótt lánsamur og aflasæll formaður. Hásetahlutir á aflahæstu bátum urðu um 5 þús. kr„ en á hinum eitt til tvö þús. kr. Heildaraaflinn í verstöðinni var 615 smál., og er það 184 smál. meira en á ver- líðinni 1948. Aflinn var allur l'rystur nema sá, er fiskaðist í jantiar. Frystihúsið keypti gotuna og greiddi kr. 0.40 pr. kg Úr lifr- arfengnum í vetur fengust 38 tn. af meðala- lýsi og 12 tn. af sótalýsi. Árið 1948 voru greiddir 82 aurar fyrir lifrarlitrann. — Beita (norsk síld) var næg alla vertíðina og var hún seld á tvær krónur kílóið. Veiðar- færatap var í meira lagi, enda urðu bát- arnir oft að hverfa í land frá línunni sök- um veðurs. Heimildarmaður: Lúðvik Aibcrtsson, Hjalla- sandi. Ólafsvík. Fimm bátar stunduðu veiðar á vertíð- inni og voru þeir 22—29 rúinl. að stærð. Var það tveimur bátum fleira en á vertið- inni 1947. Bátarnir stunduðu allir veiðar með línu. Vertíðin hófst 28. janúar, en lauk 19. maí. Beituleysi olli því, að vertíð byrj- aði nú þremur vikum síðar en jafnan áður. Tíðarfar var mjög erfitt til sjósóknar l'ram í miðjan marzmánuð, en sæmilegt úr því. Mest voru farnir 59 róðrar yfir ver- tíðina, og er það 18 róðrum færra en á ver- tiðinni 1948. Eftir mánuðum skiptist róðr- fjöldinn þannig: Janúar 1 (16), febrúar 15 (20), marz 22 (11), apríl 10 (19) og 11 í maí (11). Afli var mjög rýr. Beztur reyndist liann i marz, en var mjög lélegur í apríl og maí. Mestan afla í róðri fékk v/b Björn Jör- undsson 29. marz, 13300 kg, og beitti þá

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.