Ægir - 01.06.1949, Side 34
120
Æ G I R
Viglundur Jónsson,
ÓlafsviU.
loSnu. Meðalafli í róðri varð 4797 kg, en
]>að er 1070 kg minna en á vertíðinni 1948.
V/b Björn Jörundsson varð aflahæstur að
þessu sinni, en hann aflaði um 334 smál. af
l'iski og um 18 þús. 1. af lifur i 59 róðrum.
E)r það 100 smál. minna en aflahæsti bátur-
inn í Ólafsvík fékk á vertíðinni 1948. V/h
Björn Jörundsson er 26 rúml. að stærð.
Eigandi hans og skipstóri á honum er
Víglundur Jónssonn. Hefur hann oft áður
verið aflahæstur i þessari verstöð, en hann
hefur róið þaðan í 9 vertíðir. — Hlutir á
Birni Jörundssyni urðu um kr. 7400, en
enginn hinna bátanna aflaði fyrir um-
samdri tryggingu, en hún var um kr. 6000
yfir róðratímabilið.
Hraðfrystihús Ólafsvikur h/f keypti
aflann til frystingar nema 15 smál. sem
voru saltaðar. Það keypti einnig gotuna og
greiddi kr. 0.75 pr. kg nr. I, en kr. 0.50 pr.
kg fyrir nr. II. Lifrarhræðsla Ólafsvíkur
horgaði kr. 1.05 fyrir lítrann af lifrinni árið
1948.
Beitan var seld á kr. 1.65 pr. kg, en henn-
ar var aflað á þá lund, að 200 tn. síldar
fengust frá Suðurlandi í janúarlok, síðar
fékkst síld frá Noregi og loks frá Akur-
eyri. Loðnu var beitt í nokkra róðra. —
Veiðarfæratjón var talsvert framan af ver-
líð. Vertíðin i Ólafsvík var sú lélegasta,
sem inenn muna um langt skeið, og telja
sjómennirnir að það stafi að verulegu leyti
af því, live beitan var léleg.
Undanfarnar fimm vertíðir hefur báta-
fjöldi, heildarafli fisks og lifrar og meðal-
afli á bát verið sem hér segir:
Meðalafli
Ar 15áta- Hcildarafli Heildarafli á bát
fjöldi fiskur kg lifur 1 smál.
1945 3 1 212 000 59 500 404
1946 4 1 680 379 82 690 420
1947 4 1 683 945 94 260 421
1948 3 1 231 743 64 475 411
1949 5 1 271 123 66 590 254
Heimiltlarinaður: Ottó Árnason, Ólafsvik.
Grundarfjörður.
Fjórir bátar voru gerðir þaðan út yfir
vertíðina, og er það sama bátatala og vetur-
inn 1948. Stærð þessara háta var 24—39
rúml. Þeir stunduðu allir þorskveiðar með
lóð.
Sökum beituskorts gat vertíð ekki byrjað
fyrr en fengin hafði verið síld frá Noregi og
liófust róðrar því ekki fyrr en 27. janúar.
Veður var mjög óhagstætt til sjósóknar
alla vertíðina. Mest voru farnir 61 róður
yfir vertíðina, og skiptast þeir þannig eftir
mánuðum: Janúar 2 (12), febrúar 15 (12),
marz 22 (11), apríl 15 (17), maí 7 (9).
Afli var yfirleitt tregur alla vertíðina.
Mestan afla í róðri fékk v/h Farsæll 8.
marz um 15 smál. Meðalafli í róðri varð
4731 kg, og er það 486 kg minna en á ver-
tíðinni 1948. Mesta veiði fékk v/b Farsæll
(áður Guðfinnur í Keflavík), en afli hans
varð sein næst 310 smál. í 61 róðri, eða
um. 5078 kg að meðaltali í róðri. Eigandi
og skipstjóri þessa háts er Sigurjón Hall-
dórsson, en hann fékk einnig mesta veiði
á vertíðinni 1947.
Fiskurinn var allur keyptur upp úr sjó á
ki'. 0.53 pr. kg. Alls var aflamagnið, sem á
land kom í Grundarfirði, 945 smál. miðað
við slægðan og' hausaðan fisk. Af því var
fryst um 400 smál., lítillega var selt í skip
til útflutnings, en hitt saltað. Heildarlifrar-
magnið varð 37655 litrar. A vertíðinni
1948 var greitt kr. 0.85 fyrir lifrarlítrann.
Gotuna hirtu þeir og söltuðu, sem keyptu