Ægir - 01.06.1949, Qupperneq 35
Æ G I R
121
Sigurjón Halldórsson,
Grundarfirdi.
tiskinn. Verð á beitu var kr. 1.65 pr. kg.
— Veiðarfæratap varð nokkuð, sérstaklega
á einum bátnum, sem missti sem næst
150 lóðir.
Um aflahluti er ekki vitað til fullnustu,
þá þetta er ritað, en það mun nær sanni,
að tveir bátar hafi aflað fyrir tryggingu,
sem er finnntán hundruð krónur á mán-
uði, einn mun aðeins sleppa og sá afla-
liæsti liðlega það.
Undanfarnar fimm vertiðir hefur báta-
fjöldi, heildarafli fisks og lifrar og meðal-
afli á bát verið sem hér segir:
Ár Báta- Heildarafli Heildarafli Meðalafli á bát
fjöldi fiskur Ug tifur 1 smál.
1945 5 1 567 000 63 405 313
1946 4 1 121 230 46 741 280
1947 5 1 769 997 78 585 354
1948 4 1 022 642 44 059 255
1949 4 945 679 37 655 244
Heiniildarmaður: Elimar Tómasson, skólastjóri,
Grafarncsi.
Stykkishólmur.
Þaðan reru 6 þiljaðir bátar, og er það
sami þiljubátafjöldi og árið áður, en þá
voru sumir þeirra skemmri tíma við veið-
arnar en nú, sökum þess að þeir voru
framan af vertíð við síldveiði i Hvalfirði.
Allt voru þetta heimabátar að einum und-
anskildum, sem var frá Flatey á Breiða-
firði. Bátarnir öfluðu allir með línu.
Vertíð hófst ekki fyrr en í febrúar og olli
])vi beituskortur. Veður var yfirleitt mjög
stirl til sjósóknar, einkum þó í febrúar-
mánuði. Mest voru farnir 64 róðrar yfir
vertíðina, en 57 árið áður. Róðratala þess
báts, sem flesta fór róðrana, skiptist þann-
ig eftir mánuðum: Febrúar 10 (12), marz
25 (7), apríl 21 (20) og 8 í maí (9).
Afli á Stykkishólmsbáta mátti heita
góður og reyndist langbeztur í verstöðvun-
um á Snæfellsnesi. Telja sjómann það því
að þakka, að í marzmánuði gekk fiskur
langt inn í fjörð með loðnu og hélt sig
þar um nokkurn tíma. Meðalafli í róðri
á Stykkishólmsbáta varð 5619 kg. Alls bár-
ust þar á land yfir vertíðina 1916 smál.
af fiski og 65 880 1 af lifur. Aflahæsti bát-
urinn á vertiðinni var Sigurfari frá Flatey,
er aflaði um 389 smál. af fiski og varð því
meðalafli hans í róðri 5619 kg. Sigurfari er
51 rúmlest að stærð og er eign samnefnds
hlutafélags í Flatey. Skipstjóri á Sigurfara
er Ágúst Pétursson i Flatey, en hann var
einnig aflakóngur á vertíðinni 1947.
Fiskurinn var allur frystur, en tvö hrað-
frystihús eru starfandi á staðnum. Ný
beinamjölsverksmiðja, sem er eign Sigurð-
ar Ágústssonar, tók til starfa á vertíðinni,
og vann hún mjöl úr öllum beinunum.
Verð á lifur er enn óákveðið, en árið 1948
var greitt 70 aurar fyrir lifrarlítrann.
Heimildannaður: Oddur Valcntinusson o. fl.
Agúst Pétursson,
Siijkkishólmi.