Ægir - 01.01.1951, Blaðsíða 7
Æ G I R
MANAÐARRIT fiskifélags islands
44. árg. I Reykjavík — janúar—febrúar 1951
Nr. 1-2
Fiskifélag Islands fjörutíu ára.
Mánudaginn 20. febrúar síðasll. voru
fjörutíu ár liðin frá stofndegi Fiskifélags
Islands. — Þessa áratugi hafa miklar og
margvíslegar breytingar orðið í ísl. þjóð-
lífi, og gætir þeirra vitanlega ekki síður í
starfi félagssamtaka en á öðrum vettvangi.
^ér þess m. a. glögg merki í starfsemi Fiski-
félags íslands, þótt höfuðmarkmið þess hafi
ætíð verið það sama, að styðja og efla
;,llt það, sem verða má til íramfara og
unibóta í fiskveiðum íslendinga í sjó, ám
°g völnum, svo þær megi verða sem arð-
saniastar þeim, cr hafa atvinnu af þeim,
°g landinu í heild sinni.
Þegar Fiskifélag íslands var stofnað,
niátti svo heita, að hvorlci sjómenn né
utvegsmenn hefðu með sér nokkur sam-
lök. En á því tímabili, sem síðan er liðið,
liafa þessar stéttir deilzt í fjölmörg fé-
lög, einkum liin fyrrnefnda. Þessi þróun
hefur eðlilega leitt til þess, að félagið hef-
Ur búizt á annan hátt, ef svo mætti orða
það, heldur en upphaflega var gert ráð
l.vrir og reyndin varð fyrstu árin. En þótt
þi'óunin hafi orðið á þessa lund, hefur
starfsemi félagsins eigi að síður margeflzt
sjavanitveginum til hagsældar, enda verið
syeigð á þann hátt, sem breytt viðhorf
bafa skapað. Þjónusta Fiskifélagsins er að-
aHega þríþætt. Ber þar fvrst að nefna
I ræðslustarfsemi. Allir vélstjórar á ísl. vél-
bátaflotanum hafa sótt sérmenntun sina á
luótornámskeið félagsins, en námskeiðin
hafa verið haldin víðs vegar um land. Þá
hafa matreiðslu- og sjóvinnunámskeið
einnig verið haldin á vegum félagsins. I
öðru lagi er að geta rannsóknar- og leið-
beiningarstarfsemi. — Fiskideildin var upp-
haflega á vegum Fiskifélagsins, unz hún
tengdist Atvinnudeild Háskólans. Rann-
sóknarstofa Fiskifélagsins hefur nú starf-
að hátt í tvo áratugi og sinnt mörgum rann-
sóknarefnum og annazt leiðbeiningarstarf-
semi. Vélfræðiráðunautur hefur lengi starf-
að á vcgum félagsins og skipasmíðaráðu-
nautur uin nokkurt skeið. Loks er að nefna
skýrslu- og gagnasöfnun félagsins, er stöð-
ugt hel'ur verið að færast í auka. Reikninga-
stofa sjávarútvegsins starfar einnig á veg-
um Fiskifélagsins. Enn er þess að geta, að
tímaritið Ægir hefur lengst af verið gefið
út af Fiskifélaginu. — Þessi upptalning
mun nægja til jiess, að menn renni grun í,
hve starf Fiskifélagsins er umfangsmikið
og að það hefur eigi alllitla þýðingu fyrir
sjávarútveginn, hvernig það er rækt.
Hér verða þeir eigi taldir, sem veitt hafa
Fiskifélagi Islands foruslu né unnið því að
öðru leyti, en vöxtur félagsins sýnir ljós-
lega, að eigi hefur vcrið setið auðum hönd-
um. Enda er ástæðulaust að lúra á því, að
Fiskifélagið er eigi eftirbátur sams konar
stofnana í nágrannalöndunum. Það er trúa
mín, að Fiskifélag íslands muni eigi síður
liér eftir en Iiingað til hirða um að verða
Framhald á bls. 48.