Ægir - 01.01.1951, Blaðsíða 55
Æ G I R
49
BENDIX-dýpt armælirinn,
Eigi veit ég, hvaða ár var fyrst settur
dýptarmælir í íslenzkt skip, en ekki er
ýkjalangt siðan. En á því tímabili, sem
íslenzk skip hafa notað þetta þarfa tæki,
hafa nýjar gerðir af því komið lil sögn
°g auk þess ýmis önnur tæki, sem gagna
eiga á svipaðan hátt, þótt útbúnaður þeirra
sé með öðrum hætti.
Mánudaginn 18. des. síðastl. veittist mér
kostur á því ásamt nokkrum skipstjórum,
utgerðarmönnum o. fl. að fara með v.b.
Dagsbrún inn í Sundin við Reykjavík. Ferð
þessi var farin í því augnamiði að sýna
mönnuni í notkun nýja tegund dýptar-
niælis, er cigi hefur áður verið í íslenzku
slcipi. Dýptarmælir þessi er nefndur Ben-
dix og er framleiddur í Ameríku. — Sjálfur
hef ég lítið vit á og því minni reynslu af
slíkum gripum, og lagði ég því hlustir við
því, sem ég heyrði reynda skipstjóra segja.
hað fór ekki fram hjá neinum, að þeir
voru hrifnir af mælinum. Hann sýndi botn
mjög glögglega svo og fisk og síldartorfur,
°g kæmi hvort tveggja mjög skýrt fram,
hversu hratt sem bátnum væri snúið í
hringi. Þá töldu þeir það kost, að hann
nolar þurran pappír til sjálfritunar, og'
skemmist liann ekki, þótt mælirinn sé ekki
notaður. Þá þótti þeim það til bóta, að auð-
er að taka tækið heim með sér og geyma
það þar, þegar báturinn stundar ekki sjó.
Vegna þess, hve mælirinn er lítill fyrirferð-
ar, er auðvelt að koma honum fyrir í litlum
bátum, eða þar sem rúm er mjög tak-
markað. Botnstykkið er mjög lítið, aðeins
4 þumlungar og því auðvelt að koma því
fyrir án þess að taka bönd í sundur.
llér sést Bendix-dýptannœlirinn.
Mijnd þessi er aj mœlingu úr fcrð v.b. Dagsbrúnar 18. des. siðastl.