Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1951, Síða 20

Ægir - 01.01.1951, Síða 20
14 Æ G I R ig að nú er allur afli, ætt sem óætt, er að landi kemur, fullnýtt. Mun hér á öðrum stað í blaðinu skýrt frá starfsemi þess fyr- irtækis. í öðru lagi: Hafnarfjarðarbær á 2 togara og einn hefur nú verið keyptur i viðbót af þeim 10, sem verið er að smíða i Englandi. Má fyllilega gera ráð fyrir, að forsvarsmenn Bæjariitgerðarinnar í Hafnarfirði munu frekar líta á hag almennings og atvinnu- þarfir í bænum en vafasaman stundarhagn- að af utanlandssiglingum skipa fyrirtækis- ins. Karfaveiði er að venju hezt frá því i maí og til seþtemberloka, og er það einmitt sá tími, sem frystihúsin í Hafnarfirði hat'a verið aðgerðarminnst, og snma tíma að- gerðarlaus. Karfavinnsla yfir fyrrnefndan tíma myndi fyrst og fremst skapa atvinnuöryggi Iijá verkafólki í Hafnarfirði og rekstrarör- yggi hjá hraðfrystihúsunum í bænum. Afkastageta allra Iuisanna, niðað við að unnið sé 8 10 stundir daglega, munu vera uin 85—50 smál. af flökum, sé pakkað í 8X7 Ibs. umhúðir, en nokkru minni, ef um smærri umbúðir er að ræða. Alls munu Frystihús Inyótfs Flygenrings. (Ishús Hafnarfjarðar h.f.) vinna við þessi 8 frystihus, þegar þau frysta til útflutnings, allt uð 150 manns, konur og karlar. Er það yfirleitt þægilegri vinna en við saltfiskinn og frekar eftirsótt. En vinna þessi krefst mikillar vandvirkni og má þar enginn hlekkur bresta, ella getur illa farið. Fyrst og fremst þarf að t'ara vel með afl- ann um borð i bátunum og ekki má hann frelcar verða fyrir skemmdum á leið frá bát- unum í hraðfrystihúsin. Þar verður að vinna hann sem allra nýj- astan, og verður hver á sínum stað að gæta ítrustu varfærni í meðferð vörunnar. Fyrst verður sá, sem kastar fiskinum i þvottavél- ina, að gæta jiess að stinga aldrei nema í hausinn á fiskinum. Þá kemur til kasta flakaranna að flaka vel, skilja sem allra minnst eftir af fiski við beinin og láta ekki bein fylgja flökum. Þar næst verður það fólk, sem sniður til flökin, að skera alla blóðbletti burtu eða aðrar skemmdir, hringorma, bein, ef eru, og fleira, sem nauð- synlegt cr að fjarlægja. Þá er næst, að stúlk- urnar, sem vega fiskinn, hvort sem er 7 Ihs., 1 kg eða aðrar þyngdareiningar, vegi

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.