Ægir - 01.01.1951, Page 22
16
Æ G I R
Við pökkun i hraðfrysti-
luisi Fiskur h.f.
jnfnframt frystihúsrekstrinum, svo sem
saltfiskverkun, þorskhrognasöltun og lil-
ils háttar harðfiskverkun. Er með þessu
að því stefnt að gera tilraun með að auka
tekjur húsanna, skapa fólkinu, sem við þau
vinnur, meiri og lengri vinnu. Enda er
miklu hagkvæmara frystihúsunum að hafa
að einhverju leyti saltfisk- eða harðfislc-
framleiðslu sainhliða hraðfrystingunni.
Á það hefur verið bent, að betra væri að
hafa hraðfrystihúsin færri og stærri og' færa
þannig niður rekstrarkostnaðinn. Einnig
er á það bent, að þau þurfi að liggja fast
að upplagningsstöðum bátanna, sem afla
vörunnar. Þetta er rétt að vissu marki, en
þá er mjög líklegt, að þau yrðu að treysta
á hraðfrystinguna eina. En ég liygg, að
reynsla síðustu ára sýni glögglega, að hag-
ur húsanna væri ekki burðugur, ef þau
hefðu ekki rekið neina aðra starfsemi.
Hins vegar væri nauðsynlegt, að í út-
gerðarbæ eins og Hafnarfirði væri ein fisk-
móttökustöð, þar sem fiskurinn væri flutt-
ur á böndum úr skipinu inn í stöðina og el'
til vill gæti flökun farið þar fram í flök-
unarvél fyrir öll húsin. Síðan væri flökin
flutt í þægilegum flutningstækjum til hús-
anna. Með þessu mætti minnka rekstrar-
kostnað og auka vörugæði, þar eð allt
hnjask á fiskinum væri útilokað.
Það er aldeilis rétt, að samfærsla í mörg-
um iðnaði og atvinnurekstri er hin fyllsta
nauðsyn hér á landi, og sltal sá, er þetta
ritar, verða seinn til andmæla gegn sliku,
undir vissum kringumstæðum. Má þar
nefna ýmiss konar iðnað, sem betur væri
rekinn í einni eða tveim verksmiðjum.
Hollara væri okkur, að færri störfuðu við
innflutningsverzlunina en nú er. Búskapur-
inn bæri sig' betur á færri búum stórum en
mörgum smáum. Þannig mætti lengi telja.
En um þetta má lengi deila. Alltaf verður að
taka fleira með í reikninginn en stundar-
g'róða, en á hann hættir inönnum við að ein-
blína. En þar getur stundum vcrið hálfan
sannleika að finna. Og það er stundum ann-
að, sem kemur lil greina,, það er hið menn-
ingarlega gildi atvinnutækjanna á þessum
og' þessum stað, og stundum getur stundar-
gróði orðið að víkja af þessum ástæðum
einum.
Ýmsir hafa lalið, að hraðfrysting fisks
sé stríðsfyrirbrigði, en spár þeirra hafa ekki
rætzt, sem betur fer. íslenzki hraðfrysti