Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1951, Síða 23

Ægir - 01.01.1951, Síða 23
Æ G I R 17 Pakkarfixllfryslir, 8X7 Ibs. þorsUflöU. fiskurinn er nú þegar þelcktur i mörgum löndum heims. Má þar nefna þessi Evrópu- lönd: Bretland, Holland, Frakkland, Sviss, Þýzkaland, Finnland, Austurríki, Ungverja- land, Tékkóslóvakía, Pólland, Rússland og Htils háttar á Ítalíu. í Ameríku: Bandaríki Norður-Ameríku og Kanada. Á meginlandi Ástralíu. í Asíu: I Palestínu. í mörgum þessum löndum hefur islenzkur fiskur ver- ið óþekktur, en er nú sem óðast að ryðja sér braut, þótt misjafnt sé í hinum ýmsu löndum. í flestum þessara landa fær hann góða dóma og er víðast talinn fremri að gæðum en nokkur annar fiskur frá keppi- nautum okkar á þessum mörkuðum. Aðeins meðferð vörunnar hefur verið á- bótavant, og þá fyrst og fremst kvartanir komið frá því landi, þar sem kröfurnar eru niestar, frá Ameríku. En freðfiskurinn okk- ar þar hefur jafnt og þétt unnið á og vöru- vöndun stórbatnað síðustu missirin. Er því ástæðulaust að örvænta um að geta ekki latið frystihúsin starfa áfram, ef dýrtíð gerir bæði þeim og öðrum atvinnurekstri hér á landi ekki ólíft í framtíðinni. Fyrir rúmum IV2 áratug var svo að segja enginn mótorbátur gerður út frá Hafnar- firði, nú ganga 14—16 bátar héðan á vetri hverjum, og flestir eiga heima í bænum. Afla sinn leggja flestir bátarnir inn i hrað- frvstihúsin og hafa þannig skapað hér mikla atvinnu bæði þeim, er á bátunum vinna, og þcim, er í hraðfrystihúsunum starfa. Verð ég að telja það þarft verk þeirra, sem fyrst og fremst beittu scr fyrir aukinni mótor- bátaútgerð í Hafnarfirði, sem og verk hinna, er hófust handa um að hagnýta aflann og taka í þjónustu sína tækni og þá kunnáttu, sem gert hefur fært að nýta afla þessa hafn- firzka mótorbátaflota á þann bezta hátt, sem við enn j)á þekkjum. Hafnarfirði, á þrettándanum 1951.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.