Ægir - 01.01.1951, Síða 57
Æ G I R
51
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Hlutafélagsins Eimskipafélags íslands verður haldinn í fundarsaln-
um í húsi félagsins í Reykjavík, laugardaginn 2. júní 1951 og hefst kl. 11 /2 e. h.
DAGSKRÁ:
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum
á liðnu starfsári, og frá starfstilhöguninni á yfirstandandi ári,
og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar endur-
skoðaáa rekstursreikninga til 31. desember 1950 og efna-
hagsreikning með athugasemdum endurskoðenda, svörum
stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu
ársarðsins.
3. Kosning fjögra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra,
sem úr ganga samkvæmt félagslögum.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess, er frá fer, og
eins varaendurskoðanda.
5. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins.
6. Tillögur til breytinga á reglugjörð Eftirlaunasjóðs H.f.
Eimskipafélags Islands.
7. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp
kunna að verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. Aðgöngumiðar að fundinum
verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í
Reykjavík, dagana 30, og 31. maí næstkomandi. Menn geta fengið eyðublöð
fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík.
Reykjavík, 10. janúar 1951.
Stjórnin.