Ægir - 01.03.1979, Page 16
Sigurður Helgason:
myndast hafði á netinu. Ljóst er af þeim niður-
stöðum, sem hér liggja fyrir, að unnt er að ala
lax í 7-8 punda þyngd að meðaltali á 16-18 mánuðum
við svipaðar aðstæður og voru í Hvalfirði
1972-1973.
Lokaorð
Tilraun sú, sem gerð var í Hvalfirði 1972-1973,
var fyrsta tilraun sem gerð var hérlendis með lax-
eldi í sjó. Tilraunir Fiskifélagsins og eins tilraunir
einstaklinga með sjóeldi sýna að flotbúr svipuð og
Norðmenn nota á lygnum fjörðum í Noregi henta
yfirleitt ekki íslenskum aðstæðum, þó að fáeinir
staðir kunni að finnast hér á landi þar sem slíkt
eldi er mögulegt. Til greina kæmi að skipta eldinu
og ala Fiskinn að vetrarlagi í tjörnum, sem volgum
sjó væri dælt í, en ljúka síðan eldinu í flotbúrum
að sumarlagi, en þannig yrði minni áhætta við
eldið.
Frá sjóeldisslöð Mowi fyrirtœkisins fyrir utan Bergen í Noregi.
Lónið sem laxinn er alinn í er nokkrir hektarar að stcerð.
Þá má einnig hugsa sér smíði rammgerðra flot-
búra líkt og Bretar reyna í fjörðum Skotlands.
Einnig er mögulegt að nota svipaða tækni og
Mowi-fyrirtækið í Noregi notar við eldið. (Mowi-
fyrirtækið er stærsta laxeldisfyrirtæki Evrópu og
framleiðir árlega um 1000 tonn af laxi) þ.e.a.s.
að ala laxinn í afgirtum sjávarlónum, en slíkar
tilraunir myndu kosta mikið fé.
Rannsóknum á íslandi er yfirleitt mjög þröngur
stakkur sniðinn vegna fjármagnsskorts. Það er að
sumu leyti eðlilegt sökum fámennis hér á landi.
Þó verður að telja að til fiskræktar- og fisk-
eldismála hafi verið varið alltof litlu fjármagni,
þegar tekið er tillit til þeirra miklu möguleika, sem
þar eru fólgnir.
Um smitsjúkdóma
Inngangur
Við eðlilegar aðstæður
úti í náttúrunni er ekk'
algengt aðsmitsjúkdóma1"
í fiskum verði að faraldri-
en helst er þess að vænta
þegar fiskarnir verða fyr>r
einhverskonar álagi. Streitu-
ástand myndast t.d. þegar
umhverfisáhrif víkja svo
langt frá því sem fisk'
unum er eðlilegt, að þe,r
geta ekki aðlagast breytingunum og eðlileg líkams'
starfsemi truflast. Dæmi um streituvaldandi þmt11
eru: súrefnisskortur, yfirmettun vatns af l0lt'
tegundum (einkum köfnunarefni), breytingará húa
og sýrustigi vatnsins, mengun vatns, hræðsla, sýklar
og meiðsli.
Áhrifa streitu á heilsu fiska verður oft vart 1
fiskeldisstöðvum. Ekki er fjarri að ætla, að þar
sé tíðni sjúkdóma í réttu hlutfalli við það, hversu
umhverfið, sem fiskunum er búið, er frábrugúu
eðlilegu umhverfi. Við hönnun eldisstöðva ber þvl
umfram allt að hafa í huga að búa fiskunum seu1
stöðugast umhverfi.
Fiskar hafa þann hæfileika, eins og öll önnur
æðri dýr, að geta myndað í sér mótefni ge£n
sýklum sem berast inn í líkamann. En þar eð fiskar
hafa misheitt blóð, fer efnaskiptahraði þeirra, m a_
mótefnamyndun, eftir hita vatnsins. Þar sem ÞíU
getur tekið fiskinn nokkurn tíma að laga mótefna
myndun sína að breyttum hita, geta snöggar hita
breytingar orðið sýklum í hag.
Augljóst er að sjúkdómar sem upp kunna a
koma í eldisstöð geta haft stórfelld áhrif til hin®
verra á gæði þeirra fiska sem þar eru aldir og um lel
á fjárhagsafkomu stöðvarinnar. Hins vegar er
ílestum tilfellum hægt að koma í veg fyrir sjuK
dóma, eða draga úr áhrifum þeirra, með ret
meðferð af hálfu fiskeldismanna.
í fískum
132 — ÆGIR