Ægir

Volume

Ægir - 01.03.1979, Page 45

Ægir - 01.03.1979, Page 45
50 Og 100 m dýpi. Yfirborðshiti sjávar í Grænlands- hafi var tiltölulega hár, hærri en á árunum 1970- 1975 (Hjálmar Vilhjálmsson og Eyjólfur Friðgeirs- s°n 1976). Hitadreifingin sýnir meginhafstrauma, Irminger strauminn fyrir vestan land og með land- grunnshalla Austur-Grænlands, og tvö hring- straumskerfi dýpra í Grænlandshafi (Hermann og ' homsen 1946). A landgrunnssvæðinu fyrir vestan og norðan and var sjávarhiti á 50 m dýpi nálægt meðal- ^gi (Unnsteinn Stefánsson 1962) og einnig grynnra '-0 m) nema úti af vestanverðu Norðurlandi, þar sem kaldur sjór úr norðri var í yfirborðslögum. ru það væntanlega leifar hafísástandsins fyrr í rr'ánuðinum. . A grunnslóðum austanlands var yfirborðshiti sJavar í ágúst 1978 um 1° hærri en í meðalári nnsteinn Stefánsson 1962). Sunnanlands var ynn svipaður og 1977, en 1° hærri en 1976. 0 m dýpi var sjávarhiti á íslenska landgrunninu aftur yfirleitt í meðallagi og svipaður og 1976 og 1977. í heild var þó sjávarhiti í yfirborðslögum í Græn- landshafi og á grunninu umhverfis ísland í ágúst 1978 nálægt eða aðeins ofan við meðallag nema fyrir vestanverðu Norðurlandi, þar sem gætti áhrifa íssins. Dreifíng og fjöldi fískseiða Fiskseiðalóðningar eru sýndar á 5. mynd. Að venju lóðaði jafnframt á ýmsum öðrum lífverum, svo sem kolmunna, sandsíli, loðnu, marglyttum, ljósátu og fleira dýrasvifi. Að svo miklu leyti sem hægt er voru þessar lóðningar reiknaðar frá og eru því ekki inni í myndinni. í Grænlandshafi ollu ýmsir djúpfiskar t.d. laxsíldir og marsnákar ennfremur miklum vandræðum af þessu tagi, einkum að næturlagi; þá koma þessar tegundir upp í yfirborðslög sjávar og blandast fiskseiðunum. í heild lóðaði heldur lítið á fiskseiðum sumarið ÆGIR — 161

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.