Ægir

Volume

Ægir - 01.03.1979, Page 31

Ægir - 01.03.1979, Page 31
°g mjölvarningur (hveiti, hafrar). Tilraunir í smáum stil stóðu fram til 1972. Niðurstöður innlendra tilrauna og forsendur þeirra Niðurstöður tilraunanna voru mjög jákvæðar. ^axtarhraði og þroski laxaseiða gerðist meiri en á e/lendu þurrfóðri, sem notað var til samanburðar. ^ þetta við um margar tilraunir sem gerðar voru a árunum 1969-1972 í Laxeldisstöð ríkisins og eldisstöð Tungulax h.f. að Keldum. Forsendur þessara niðurstaðna eru fyrst og remst bandarískar vísindagreinar og þekking Kannsóknastofnunar fiskiðnaðarins á próteinum, en þessi atriði voru sameinuð í umræddum til- ^aunurn í því markmiði að framleiða innlent þurr- til laxfiskræktar. Forsendur fyrir fiskfóður- ramleiðslu hérlendis eru að mörgu leyti góðar og serstaklega vegna þess, að laxfiskar eru dýraætur og Partnast mjög mikilla próteina, en á íslandi er veru- eIt framboð af ýmsum smáfiski og fiskfráfalli ra frystihúsum landsins. Hins vegar er verulegur °rtur á þekkingu hér á landi á næringarfræðum, 'sksjúkdómafræðum og lífeðlisfræði fiska, og háir Pað framþróun á þessu sviði. '’Hálf'-framleiðslutilraunir (pilot plant experi- ^tents) á vegum Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins 1 !jósi þess, að oft eru veruleg vandkvæði á a§nýtingu rannsóknastofutilrauna fyrir fram- eiðslustig, réðst Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins p í kaup á fóðurpilluvél (pelletizer) fyrir fisk- 0 nrrannsóknir. Með tilkomu þessarar vélar réð St°fnunin þá yfir flestum nauðsynlegum tækjum til „hálf“-framleiðslutilrauna. Ráðist var þá í eftir- farandi tilraunir (1971-1972): a. ) 5000 bleikjur voru aldar frá 5 grömmum upp í 400-500 g að meðaltali. Fylgst var nákvæm- lega með vexti og fóðurnotkun, og gerður var samanburður við erlent þurrfóður. Saman- burður reyndist mjög hagstæður, en verulega minna þurfti af innlenda tilraunafóðrinu til framleiðslu á hverju kílói af fiski. Gerð var rannsókn á efnasamsetningu fisksins og lifur. Bragð og lyktarprófanir voru framkvæmdar af matshóp (taste panel) og reyndist fiskur- inn standast allan samanburð við góða vatna- bleikju. Að lokum var (nánast) allur fiskurinn seldur í kjötverslun í Reykjavík og líkaði að sögn kjötkaupmanns mjög vel. b. ) Um 12000 laxaseiði voru alin frá upphafi (kviðpokastigi) til 10-20 g þunga, en þeim þunga höfðu seiðin náð í lok september 1972 (kynslóð, sem kom úr hrognum 1972). Höfðu aldrei sést svo stór sumaralin seiði í Laxeldis- stöð ríkisins í Kollafirði í septembermánuði. Þessi seiði voru síðan notuð til endurheimtu- tilrauna úr sjó og áttu þátt í hinni óvanalega háu endurheimtu einsársseiða í Kollafirði sum- arið 1974 (sbr. Árni ísaksson, Returns of Salmon to the Kollafjördur Fish Farm in 1974, Fjölrit 13, Reykjavík 1974). c. ) Töluvert magn var selt af „pilot-plant“-fóðri til Laxeldisstöðvarinnar í Kollafirði, Tungulax h.f. og Fiskifélag íslands (laxeldi í sjó) árin 1971 of 1972. Fóðrari af „Ewos" gerð ÆGIR — 147

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.