Ægir - 01.03.1979, Page 33
Stofnun FiFó og hafin framleiðsla á þurrfóðri
tyrir laxfiska
í árslok 1972 var fyrirtækið FiFó stofnað til
rarnleiðslu þurrfóðurs til fiskeidis á grundvelli
Þrirra niðurstaðna, erfengist höfðu á vegum Rann-
s°knastofnunar fiskiðnaðarins. Fyrirtækið var
^aðsett í Hveragerði. Framleiðsla hófst strax í
ársbyrjun 1973. Viðskiptaaðilarvorufyrstogfremst
eftirtaldir:
Tungulax h.f.
Laxeldisstöð ríkisins í Kollafirði.
Laxeldisstöðin á Laxamýri í Þingeyjarsýslu.
Tyrirtækið framleiddi allar tegundir (stærðir) af
axafóðri og silungafóðri alveg fram til ársloka
'4. Framleiðsla fór vaxandi fram til snemma árs
1974.
vandamál fóðurframleiðslu FiFó
Snemma árs 1974 fór að verða lítillega vart
'^ sjóndepru og blindu ásamt „kubbaeinkennum“
stöðnun í hryggvexti) smálaxa í Kollafirði og á
axamýri, en þar var um að ræða kynslóð frá 1973.
ntennur vöxtur fiska var þó með ágætum og
onnur afkoma. Ekki voru þessi einkenni það út-
neidd, að alvarlegt þætti. Þegar til lengdar lét,
Vl,ftust þessi einkenni fara rénandi. Hins vegar
a u sömu einkenni verulegri útbreiðslu á Keldum,
,n a. þeim stað er töluvert óvanalegt vatn, svo ekki
ba *tl almennrar túlkunar. Verulega mikið
r siðan á umræddum einkennum á miðju sumri
^ ollafirði 1974-kynslóðinni svo og að öxnalæk
Ja Tungulaxi h.f., og eitthvað varð þeirra vart á
auðárkróki. Var því talin ástæða til að leggja að
fyrrtU ^*^ur fmmleiðslu á laxafóðri þar til orsakir
að r^.reinc*ra sjúkdómseinkenna yrði ljós. Segja má,
siðan hafi aðeins verið framleitt tilraunafóður
fynr lax
sterkur
smáum stíl í FiFó-verksmiðjunni.
grunur lék á, að ástæðna væri að leita
1 toðrinu.
þess^ ^árust upplýsingar frá Bandaríkjunum
ar^ e^n.'s’ Qölmargar opinberar fiskeldisstöðv-
föll ' *anúi hefðu orðið fyrir miklum skakka-
Um Vegna augnhvítu (cataract) í laxi af sama
sPurn°^ hafði orðið fyrir. Einnig bárust
ag lr.af því, að sams konar kvilli væri orðinn
h Hjriháttar vandamáli í Japan. Greinar-
Riis n 1 úárust persónulegar upplýsingar frá R.C.
Lab °rneii University, G.L. Rumsey, Tunison
Rumsat0ry ^tsh Nutrition og C. Byrne. G.L.
y er forstöðumaður einnar hæfustu rann-
sóknastöðvar í heiminum í næringarfræði fisks.
Samkvæmt upplýsingum ofangreindra vísinda-
manna, virtist augnhvítan stafa af fóðri, sem
innihélt háa prósentu af steinefnum úr ljósu
fiskmjöli (white fish meal). Unnt var að framkalla
augnhvítu með því að bæta steinefnum, sem unnin
voru úr ljósu fiskmjöli, saman við laxa- og silunga-
fóður. Um raunverulegar ástæður var ekki vitað um
það leyti.
Áframhaldandi tilraunir
Seinni hluta sumars 1974 var strax hafist
handa með tilraun í Kollafirði til þess að freista
þess að finna skýringar á vandamálunum. 4000 laxa-
seiði voru alin á tilraunafóðri frá 1 g að þyngd
ogjafnmörg seiði alin á Ewosfóðri til samanburðar.
Tilraunafóðrið innihélt nú minna af steinefnum en
áður, og fiskmjölið var valið sérstaklega og þess
vandlega gætt, að hráefni til fiskmjölsframleiðsl-
unnar væri nýtt og óskemmt. Fiskmjölið, sem notað
var í fóðrið, var framleitt með gufuþurrkunar-
aðferð hjá Stjörnumjöl h.f. i örfirisey. Niður-
stöður urðu þær, að laxinn, sem alinn var á FiFó
fóðrinu nýja, óx mun betur en Ewos laxinn, en
sjúkdómsvandamálin voru ekki úr sögunni. Lítil-
lega varð vart augnhvítu um sinn. Hluti seiðanna
var alinn upp fram til sumars 1976 og sleppt
í sjó ásamt seiðum, sem alin höfðu verið á Ewos
fóðri. Seiðin á íslenska fóðrinu voru á milli 100-200
g að þyngd og allt að því helmingi stærri en við-
miðunarseiðin, og skv. skýrslu Dr. Guðmundar
Georgssonar á Keldum var beinabygging þeirra
fyrrnefndu óeðlileg í hluta seiðanna (,,kubbar“).
Þessum tilraunaseiðum var sleppt í sjó sumarið
1976 og hluti þeirra endurheimtist til stöðvarinnar
í Kollafirði sumarið 1977. Þau íslensku skiluðu sér
eitthvað betur en viðmiðunarseiðin, en endur-
heimtur voru lágar úr báðum hópum. Enda voru
þetta óvanalega stór seiði og vandamál komu
upp í sambandi við sjógöngu.
Vorið 1976 var enn hafist handa við tilraun í
Kollafirði. Byrjað var með 10.000 kviðpokaseiði.
Fóðrið var í meginatriðum búið til úr gufuþurrk-
uðu fiskmjöli, byggmjöli, sojaolíu, lýsi, mjólkur-
dufti, vítamínblöndu, þráavarnarefni, kólín og
tótanín (bindiefni). Hráefni til fiskmjölsgerðar-
innar var valið sérstaklega, og loðnumjöl notað
að hluta til í byrjun. Ennfremur var reynt að
minnka steinefni í fiskmjölinu með sérstakri
sigtun. Þegar kom fram á sumar fór að bera
ÆGIR — 149