Ægir - 01.03.1979, Page 57
og aflabrögð
AUur afli báta er miðaður við óslægðan fisk, en
d 1 skuttogaranna er miðaður við slægðan fisk,
a aflann í því ástandi sem honum var landað.
egar afli báta og skuttogara er lagður saman,
samanber dálkinn þar sem aflinn í hverri verstöð
er faerður, er öllum afla breytt í óslægðan fisk.
eynt verður að hafa aflatölur hvers báts sem
aakvæmastar, en það getur oft verið erfiðleikum
' sérstaklega ef sami báturinn landar í fleiri en
e|nni verstöð í mánuðinum, sem ekki er óalgengt,
e'ukum á Suðurnesjum yfir vetrarvertíðina.
Afli aðkomubáta og skuttogara verður talinn
með heildarafla þeirrar verstöðvar sem landað var í,
°8 aerist því afli báts, sem t.d. landar hluta afla
Slns í annarri verstöð en þar sem hann er talinn
|era §erður út frá, ekki yfir og bætist því ekki
1 afla þann sem hann landaði í heimahöfn sinni,
ar sem slíkt hefði það í för með sér að sami
mn yrði tvítalinn í heildaraflanum.
'ar tö*ur eru bráðabirgðatölur, en stuðst við
-^j^fgar tölur ársins 1978.
OG SUÐVESTGRLAND
Januar 1979
þar"æ^'r V°rU ^óðar og almennt róið flesta daga,
ins Sem,*lann lá í hááttinni mestan hluta mánaðar-
’ en á hinn bóginn var hann oft kaldur.
ve 's' ^ata^otans var mun betri en hann hefur
afl^n s’®astt’ðnar vertíðir. f Grindavík varð
sarria1 Þr’svar sinnum meiri en hann varð á
„ .. tlrna í fyrra, en að vísu voru fleiri bátar
’r þaðan út nú, eða 54 á móti 32 í fyrra, og
úr ^ar mest um að línubátum hefur fjölgað
sun fyrra ‘ 32 nú. f öðrum verstöðvum
n ands og á Suðurnesjum varð aflaaukningin
í kringum 20% miðað við sama mánuð í fyrra.
Frá Hafnarfirði að Stykkishólmi voru sjósókn og
aflabrögð svipuð og undanfarnar vertíðar.
.í mánuðinum stunduðu 240 (217) bátar botn-
fiskveiðar frá þessum landshluta og varð saman-
lagður afli þeirra 9.617 (7.447) tonn í 1920 (1842)
sjóferðum, eða að meðaltali 5,0 (4,0) tonn í sjóferð.
Á línu voru 139 (117), netum 60 (57), togveiðum
27 (35), færum 3 (2), spærlingsveiðum 1 (0) og með
skelplóg voru 10 (6).
Aflahæsti línubáturinn í mánuðinum varð Garð-
ar II frá Ólafsvík með 111,6 tonn í 16 róðrum
og næsthæstur varð Grótta frá Akranesi með 111,1
tonn í 19 róðrum. Aflahæsti netabáturinn varð
Hrafn Sveinbjarnarson III með 156,5 tonn í 10
róðrum og næsthæstur varð Fjölnir með 152,0tonn
í 8 róðrum, báðir frá Grindavík. Aflahæstur
togveiðibátanna varð Sigurbára Vestmannaeyjum
með 92,3 tonn í 3 sjóferðum.
Hörpudiskveiðarnar hófust af krafti frá Stykkis-
hólmi eftir áramótin, en þær höfðu að mestu legið
niðri síðan í nóvember. 10 (6) bátar stunda nú
þessar veiðar og varð samanlagður afli þeirra
766 (572) tonn í 129 (96) róðrum.
25 (27) skuttogarar lönduðu 49 (59) sinnum í
mánuðinum, samtals 6.234 (7.141) tonnum, enjafn-
framt fóru skuttogarar úr þessum landshluta í 9
söluferðir og lönduðu erlendis 1.327 tonnum. Afla-
hæsti skuttogarinn varð Ingólfur Arnarson með
372,0 tonn í 3 veiðiferðum og næsthæstur var Maí
með 342,3 tonn einnig í 3 veiðiferðum.
(Tölur innan sviga eru fyrir sama mánuð í fyrra)
Aflinn í hverri verstöð miðað 1979 1978
við óslœgðan fisk: tonn tonn
Vestmannaeyjar 1.403 1.158
Þorlákshöfn 1.423 1.111
Grindavík 2.760 1.088
Sandgerði 1.862 1.547
Keflavík 1.289 2.004
Vogar 27 71
Hafnarfjörður 1.269 1.825
Reykjavík 2.126 2.694
Akranes 1.462 1.159
Rif 524 550
Ólafsvík 1.304 1.020
Grundarfjörður 307 366
Stykkishólmur 95 199
Aflinn í janúar Ofreiknað í janúar 1978 15.851 14.792 208
Afli frá áramótum 15.851 14.588
ÆGIR — 173