Ægir - 01.06.1980, Blaðsíða 30
Orkuspárnefnd hefur nýverið sent frá sér skýrslu,
þar sem gerð er spá um olíueyðslu landsmanna
á næstu tveimur áratugum. Hluti þessarar skýrslu er
spá um olíunotkun íslenska fiskiskipaflotans fyrir
þetta tímabil og er þar gert ráð fyrir að hlutfall
svartolíu aukist hjá loðnu- og togaraflotanum úr
49% nú, í 80% um aldamót. Ef ýmsar aðrar áætlanir
sem raktar eru í greinargerðinni fara eftir, þá mun
olíunotkun fiskiskipaflotans verða eftirfarandi:
(Tölur í þúsundum tonna.)
Ár Gasolia Svartolía Samtals
1978 138,6 13,0 151,6
1980 108,0 55,0 163,0
1985 93,0 63,0 156,0
1990 80,0 68,0 148,0
1995 74,0 75,0 149,0
2000 68,0 81,0 149,0
liggja fyrir um 300 umsóknir hjá stjórnvöldum-
Vegna hins góða árangurs sem náðst hefur í eldi a
silungi og laxi, hefur áhugi vísindamanna beinst i
auknum mæli að fiskeldi sjávarfiska og þá fyrst og
fremst þorsksins. Fram til þessa hafa norskar haf-
rannsóknir nær eingöngu snúist um að fylgjast meó
lífinu í sjónum, en vegna hins geigvænlega vanda
sem upp hefur komið á síðari árum, þegar aðal-
nytjafiskstofnar landsmanna fara síminnkandi,
stórsíldarstofninn hruninn og fleiri liggur við hrum-
hefur áhugi manna aukist mjög fyrir að reyna að
hjálpa náttúrunni að viðhalda þessum fiskstofnum
og auka viðkomu þeirra eftir fremsta megni. Norska
hafrannsóknastofnunin hefur nú snúið sér að þess-
um málum og sem miðstöð fyrir þessar rannsókmr
hefur eyjan Austevoll fyrir utan Bergen verið
valin, en frá fornu fari hefur eyja þessi verið
byggð fiskimönnum og er gert ráð fyrir að í fram-
tíðinni muni flestir þeirra leggja stund á fiskeldis-
störf. Vísindamenn þeir sem á Austevoll starfa eru
að kljást við hin ýmsu leyndarmál þorsksins, og
þegar tekist hefur að upplýsa þau öll, verður hafis1
handa við að endurreisa norska þorskstofninn og
gera hann aftur að þeim sterka stofni sem hann
einu sinni var. Er stefnt að því að finna upp aðferð
við þorskseiðaeldið sem er ódýr og það tækm-
lega einföld að almenningur geti beitt henni. Gert
er ráð fyrir a.m.k. 5-10 ár muni líða áður en árangut
hefur náðst á þessu sviði. Sem stendur er aðal-
áherslan lögð á að fynna upp örugga og hagkvæma
aðferð við að frjóvga þorskhrogn og í framhald’
af því að hjálpa seiðunum á frumskeiði lífs þeirra-
en þá eru hin náttúrlegu afföll gífurlegust. Gera
vísindamennirnir sér vonir um að þegar þeir hafa
náð tökum á þessum þætti málsins, geti hlutfal*
þeirra seiða sem lifa af fyrstu vikurnar hækkað ut
0,02% í 10%, sem þýðir að fullvaxin hrygna ætti að
geta gefið af sér allt að 250.000 afkomendur árlega-
Fiskeldi er eini hluti norska fiskiðnaðarins sem
ekki er styrktur með opinberu fé. Á sl. ári var fisk-
eldi stundað í 210 stöðvum sem framleiddu 2.700
tonn af silungi og rúmlega 4.000 tonn af laxi.
Bendir allt til þess að þegar til lengri tíma er litið
eigi fiskeldi eftir að aukast verulega og verða öflug
atvinnugrein. Mikil ásókn er i að fá tilskilin leyfi
til að setja á stofn fiskeldisstöðvar og sem stendur
í hinni árlegu yfirlitsskýrslu FAO um fiskveiðar
og fiskvinnslu í heiminum fyrir árið 1978 kemur
m.a. fram, að af heildarfiskafla heims sem var tæpar
72,4 milljónir tonna, voru um 65,0 milljón tonu
sjávarfiskur, en 7,4 milljón tonn ferskvatnsfiskur-
Af þessu magni fóru 51,4 milljón tonn beint til mann-
eldis, eða 71%, en 21 milljón tonna fór til annarra
nota, mest þó í bræðslu. Af því fiskmagni sem f°r
til manneldis var 20,3 milljónir tonna selt ferskfi
13,2 millj. tonna fyrstar, 8,7 millj. tonna saltaðar.
334 — ÆGIR