Ægir - 01.06.1980, Blaðsíða 56
ÁTÆKJAMARKAÐNUM
Wichmann AXA og
AXAG dieselvélar
Fyrirtækið Wichmann Motorfabrikk A/S (nú
A/S Wichmann) var stofnað árið 1903 á Rubbe-
stadneset skammt sunnan við Bergen í Noregi. í
upphafi framleiddi verksmiðjan eingöngu tví-
gengisglóðarhausvélar, sem notuðu sveifarhúsið
fyrir skolloftsdælu. Fyrstu dieselvélina framleiddi
verksmiðjan uppúr 1930 og var hún reynzlukeyrð
á árinu 1935. Arin þar á eftir voru framleiddar
ýmist glóðarhausvélar eða dieselvélar, en upp
úr 1955 var framleiðslan eingöngu dieselvélar.
Árið 1955 urðu ákveðin tímamót í framleiðslu
Wichmann dieselvéla, en þá var fyrst tengdur afgas-
hverfill við Wichmann vél, og frá árinu 1969 eru
allar Wichmann dieselvélar búnar afgashverfli og
fæðiloftskæli, en þessi búnaður eykur afkastagetu
vélanna um 100-150%.
Kaupendur Wichmann dieselvéla hafa fyrst og
fremst verið norskir útgerðarmenn, en um 35%
aðalvéla norska flotans, sem eru af stærðinni
1350-3600 hö, eru framleiddar af Wichmann. Þeim
kaupendum sem óskað hafa aflmeiri véla en 3600 hö
hefur verið sinnt með margvélakerfum allt að 14400
hö.
Fyrir um tíu árum síðan var 75-80%af dieselvéla-
framleiðslunni seld í fiskveiðaflotanum, og þa
einkum í nótaveiðiskip og togara. I dag hefur
þetta breytst verulega í þá átt að vélarnar seljast
í mun fleiri skipsgerðir eins og t.d. flutningaskip-
ferjur, dráttarbáta, birgðaskip, varðskip o.s.frv.
Jafnhliða dieselvélaframleiðslunni rekur A/S
Wichmann vélaverkstæði og dráttarbraut, setu
getur tekið upp skip allt að 60 m að lengd. Á véla-
verkstæðinu eru stundaðar allar almennar véla-
viðgerðir, en stór hluti af starfsemi verkstæðisins
er í sambandi við vélaskipti, þ.e. skip koma þangað
með gamlar aðalvélar, fyrirtækið selur þeim nýja
Wichmann dieselvél, og vélaverkstæðið sér uni a^
koma nýju vélinni í skipið ásamt nauðsynlegum
fylgibúnaði.
í Bergen er sölu- og markaðsöflunardeild fynr'
tækisins, en þar eru allir meiriháttar sölusamningar
gerðir, ásamt útboðsvinnu. Þjónustudeildin er til
húsa á Rubbestadneset, en hún hefur með öH
ábyrgðarmál að gera ásamt almennri varahluta-
þjónustu. í Tromso er rekið útibú frá þjónustu-
deildinni, sem hefur svipað hlutverk og aðaldeildm-
í dag starfa hjá A/S Wichmann um 350 manns við
margháttuð störf.
Um 1200 dieselvélar hafa verið framleiddar, sem
tilheyra framleiðslulínunum AC, DC og AX, þar a*
eru um 1150 þeirra í gangi í dag. í dag hafa AC- °£
DC-línurnar verið aflagðar og eingöngu fram/
leiddar dieselvélar eftir AX-línunni, sem segja ma
að sé beint framhald af AC-línunni.
Wichnrann dieselvél gerð 4A XA.
ÆGIR — 360